Óhugnanleg frásögn úr æsku Russell Brand – Faðirinn keypti vændiskonu handa honum

Breski grínistinn og leikarinn Russell Brand, sem hefur verið sakfelldur fyrir alvarleg kynferðisbrot, var aðeins 17 ára þegar faðir hans keypti vændisþjónustu handa honum í ferð þeirra til Hong Kong. Feðgarnir stunduðu síðan kynlíf með vændiskonum í sama herbergi.

Þessi ótrúlega frásögn er meðal þess sem rifjað er upp í ítarlegri umfjöllun Daily Mail um fortíð grínistans og samband hans við föður sinn, Ron Brand. Frásögnin kemur úr sjálfsævisögu grínistans, My Booky Wook, sem kom út árið 2007.

Samkvæmt frásögn Brand keypti faðir hans þjónustu þriggja vændiskvenna, tveggja fyrir sjálfan sig og einnar fyrir son sinn. Þeir stunduðu síðan kynlíf með konunum í sama herbergi og hefur Brand lýst því hvernig hávaðinn frá föður hans truflaði hann.

Brand sagði jafnframt í bókinni að hann hefði síðar í ferðinni átt kynferðisleg samskipti við fjölmargar aðrar vændiskonur og aldrei notað smokka. Brand sagði reynsluna hafa breytt viðhorfi hans til kynlífs til frambúðar. Sakleysi og ráðaleysi unglingsáranna hefðu vikið fyrir mun flóknari og óseðjandi kynlífslöngun.

Fékk að horfa á klám sem barn

Í umfjöllun Daily Mail er einnig rifjað upp að Brand hafi lýst því hvernig faðir hans leyfði honum að skoða klámblöð og horfa á klámmyndir þegar hann var enn í grunnskóla.

Brand var aðeins sex mánaða gamall þegar foreldrar hans skildu og ólst hann að mestu upp hjá móður sinni, Barböru, sem glímdi við krabbamein á uppvaxtarárum hans.

Þrátt fyrir að búa ekki með föður sínum dáðist Brand mjög að honum. Í sjálfsævisögunni lýsir hann meðal annars því hvernig faðir hans stundaði kynlíf með konum á heimili sínu á meðan hann var þar.

Blaðamaður Daily Mail, Alison Boshoff, veltir því fyrir sér hvaða áhrif þetta óvenjulega uppeldi hafi haft á viðhorf Brand til kvenna og kynlífs – nú þegar hann hefur verið sakfelldur í málinu sem höfðað var gegn honum.

Fór í meðferð vegna kynlífsfíknar

Brand varð síðar þekktur fyrir opinskáar og oft grófar frásagnir af kynlífi sínu. Hann viðurkenndi að hafa átt í erfiðleikum með að hemja kynferðislega hegðun sína og fór árið 2005 í meðferð vegna kynlífsfíknar á bandarískri meðferðarstofnun.

Í sjálfsævisögu sinni viðurkenndi hann þó að ákvörðunin um að leita sér hjálpar hefði ekki eingöngu verið tekin af áhyggjum af eigin hegðun. Hann hefði fyrst og fremst óttast að hegðunin gæti skaðað feril hans í skemmtanabransanum.

Brand lýsti því að metnaður hans hefði alltaf verið sterkasta driffjöðrin í lífi hans og þegar honum var gert ljóst að kynlífshegðun hans gæti komið niður á frama hans hefði hann átt auðveldara með að líta á hana sem vandamál sem þyrfti að leysa.

Daily Mail rifjar þessar frásagnir upp í kjölfar þess að Brand var sakfelldur fyrir eina nauðgun og þrjú kynferðisbrot. Hann var sýknaður af tveimur öðrum nauðgunarákærum og einni ákæru um tilraun til kynferðisbrots.

Brand, sem neitaði öllum sakargiftum, viðurkenndi þó fyrir dómi að hann hefði misnotað frægð sína og að fyrri hegðun hans gagnvart konum hefði verið langt umfram það sem eðlilegt gæti talist.

Refsing yfir Brand verður kveðin upp á mánudag en hann gæti átt yfir höfði sér langan fangelsisdóm.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅