Aflýsa leiknum vegna ástandsins
Vináttulandsleik Jórdaníu og Indónesíu, sem átti að fara fram í næstu viku, hefur verið aflýst vegna ástandsins í Mið-Austurlöndum.
Það var knattspyrnusamband Indónesíu sem óskaði eftir því að fá leiknum, sem átti að fara fram í Amman á föstudaginn eftir viku, aflýst.
Jórdanía á einnig að mæta Ástralíu á heimavelli 17. nóvember og stendur enn til að sá leikur fari fram. Samkvæmt áströlskum fjölmiðlum eru þó einhverjir leikmenn landsliðsins ósáttir við að þurfa að ferðast til landsins.
Leikirnir voru liður í undirbúningi fyrir Asíubikarinn en mótinu hefur verið frestað þar til í desember á næsta ári vegna árása á Sádi-Arabíu, sem á að halda keppnina.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗