MAST boðar rannsókn og gagnrýnir Einar Loga - „Aldrei réttlætanlegt með neinum hætti“

Einar Logi Pétursson, sem var handtekinn vegna innbrota og sleppinga dýra á nokkrum búum á Kjalarnesi, birti myndband úr innbrotinu í verksmiðju Stjörnugríss fyrr á þessu ári sem hefur vakið mikinn óhug. Þar má meðal annars sjá særð svín og dauða grísi.

Sjá einnig: Einar Logi birtir myndband úr innbrotinu í verksmiðju Stjörnugrís – Forstjórinn segir hann „gerpi“

Matvælastofnun (MAST) hefur nú sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins en þar segir að aðgerðir Einars Loga, sem meðal annars hleypti svínum úr stíum og úr húsi í slæmu veðri, hafi valdið skaða sem ekki sé hægt að réttlæta með neinum hætti.

MAST tekur fram að stofnunin hafi eftirlit með svínabúum minnst árlega en slíkt geti þó aldrei komið að öllu leyti í veg fyrir brot. Ábendingum um hugsanleg brot á velferð dýra sé undantekningalaust tekið alvarlega.

„Á myndbandi því sem birt var af aðila sem braust inn á svínabú sjást dýr með sár. Slíkt getur komið fyrir í öllu dýrahaldi þó ákvæði um aðbúnað dýranna sé fullnægt. En ef það gerist, er ótvíræð krafa yfirvalda að umráðamaður bregðist strax við með viðeigandi meðhöndlun og meðferð dýrsins og stofnunin fylgist ávallt með að slíkt sé gert. Á myndbandinu sést jafnframt gylta að gjóta og dauðir gríslingar. Gríslingar geta fæðst andvana eins og hjá öllum tegundum. Þekkt er að utanaðkomandi stress getur valdið ótímabæru goti. Stofnunin var upplýst um fósturmissi og að fæðing hafi farið af stað hjá nokkrum gyltum í tengslum við innbrotin.“

Rannsaka þurfi nánar það sem fram kemur á myndbandinu en rannsóknin mun þó einnig beinast að því hvort þar sé mögulega um afleiðingu af innbrotinu að ræða. Stofnunin muni ekki horfa fram hjá ef brotið hefur verið á dýrum.

Það sé þó brýnt að aðferðir og aðgerðir þeirra sem telja brotið á dýrum valdi eða auki þjáningu dýra.

„Í tilfelli innbrota á gyltubú í tvígang þá ollu því miður aðgerðir viðkomandi, meðal annars að hleypa dýrum úr stíum sínum og út úr húsunum í slæmu veðri, því að fjöldi dýra bæði slösuðust og drápust. Það er aldrei réttlætanlegt með neinum hætti.“

Rétt er að geta þess að Einar Logi hefur hafnað þeim skýringum forsvarmanns Stjörnugríss um að ástand dýranna megi rekja til fyrra innbrotsins. 

„Það er bara allt rangt sem forsvarsmaður Stjörnugríss segir. Öll myndskeiðin sem ég hef birt voru tekin áður en ég hleypti svínunum út,“ segir Einar Logi í samtali við Vísi í kvöld. Fyrsta myndbandið sé úr einu búi og tekið áður en hann hleypti svínunum út og seinna myndbandið sé úr öðru svínabúi á Kjalarnesi. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅