Borin af velli í Breiðholti
Karen Tinna Demian, leikmaður ÍR, var borin af velli í leik liðsins gegn Fram í úrvalsdeild kvenna í handbolta rétt í þessu.
Lentu hún og Katrín Anna Ásmundsdóttir í hörðum árekstri með þeim afleiðingum að Karen fékk þungt höfuðhögg.
Eftir nokkurra mínútna aðhlynningu var hún að lokum borin af velli.
Karen er uppalinn ÍR-ingur og hefur leikið með liðinu stærstan hluta ferilsins en hún hefur einnig leikið með Stjörnunni.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗