Furðar sig á 20 milljarða kostnaði við ráðgjöf
Ólafur Adolfsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, beindi fyrirspurn sinni að Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra. Samsett mynd/mbl.is/Karítas/Eyþór
Ólafur Adolfsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, furðaði sig á ráðstöfun 20 milljarða króna til ráðgjafar vegna gerðar Sundabrautar og nýrra Hvalfjarðarganga í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í gær, en innviðafélagið Göng og brú auglýsti á dögunum forval fyrir umfangsmikla ráðgjöf vegna framkvæmdanna.
Beindi hann fyrirspurn sinni að Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra, en um er að ræða fimm ára samning og er virði hans metið á um 20 milljarða króna sem felur í sér verkefnaumsjón og forhönnun.
Er því ekki um að ræða útboð á verkinu sjálfu, þ.e. byggingu samgöngumannvirkjanna.
„Átta mig ekki alveg á þörfinni fyrir þetta útboð“
„Ég verð að viðurkenna að ég átta mig ekki alveg á þörfinni fyrir þetta útboð. Ég stóð í þeirri trú að útboð á byggingu þessara mannvirkja myndi innihalda hönnun og allt slíkt. Ég sé ekki tilganginn með því að verja 20 milljörðum króna í að ráða eitthvað ráðgjafarteymi, einhverja millistjórnendur væntanlega, til að sinna einhverjum óskýrum verkefnum,“ sagði Ólafur.
Spurði hann þá innviðaráðherra:
„Hver er nákvæmlega tilgangurinn með þessu ráðgjafarteymi og væri ekki unnt að sinna þeim verkefnum sem því er ætlað að sinna með hagkvæmari hætti?“
Á pari við 200 opinbera starfsmenn í fimm ár
Kostnaðinn sagði Ólafur á pari við ríflega 200 opinbera starfsmenn í fullri vinnu í fimm ár. „Er einhver hagkvæmni fólgin í þessu, hæstvirtur ráðherra?“
Eyjólfur svaraði fyrirspurn Ólafs á þann veg að um væri að ræða almenna ráðgjöf sem væri verið að bjóða út fyrir félagið.
Sé Sundabrautin til dæmis eitt þeirra verkefna sem til skoðunar er að fært verði til félagsins Ganga og brúar, en ekki hafi verið tekin ákvörðun um fyrirkomulag færslunnar.
„En Göng og brú hefur nú tengil við verkefnisstjórn Sundabrautar til að fylgjast með framvindu verkefnisins og Vegagerðin hefur átt samráðsfundi við forstjóra Ganga og brúar. Það er viðskiptaáætlun og annað slíkt sem þau þurfa sérfræðiráðgjöf við varðandi ákvarðanatöku í sínu félagi,“ sagði Eyjólfur í svari sínu.
Væri félagið sjálfstætt en það breyti því ekki að það þurfi aðgang að sérfræðiþekkingu, svipað og Isavia og önnur innviðafélög.
Engu nær eftir svar ráðherra
Steig Ólafur þá engu nær í annað skiptið upp í pontu og sagðist engan veginn átta sig á því hvað hæstvirtur ráðherra væri að segja.
„Ég var í rauninni að spyrja um það hvaða hlutverk þetta ráðgjafarteymi hefði. Hér er um að ræða 20 milljarða kr. útgjöld og ég setti þetta í samhengi við 200 starfsmenn í fimm ár. Ég velti fyrir mér: Þegar við setjum orðið ráðgjöf á þetta, það hlýtur að vanta betri skýringar frá ráðherranum um nákvæmlega hverju þetta á að skila?“ spurði Ólafur í annað sinn.
Þá sagðist Eyjólfur ekki ætla sem ráðherra að skipta sér af ákvarðanatöku þessa sjálfstæða félags. „Hér er verið að spyrja mig um það hvað sjálfstætt félag er að gera.“
Bætti hann þá við að hlutverkið væri að aðstoða félagið Göng og brú í ákvarðanatöku sinni er lýtur að þeim samgöngumannvirkjum sem munu fara inn í félagið.
Félagið þurfi að sjálfsögðu að fá ráðgjöf
„Ég tel að innviðafélagið Göng og brú gæti stuðlað að byltingu í samgönguframkvæmdum á Íslandi. Þetta er sjálfstætt félag með sjálfstætt tekjustreymi og sjálfstæðan lántökurétt og það mun byrja framkvæmdir núna á næsta ári.“
Þá þurfi félagið að sjálfsögðu að fá ráðgjöf frá sérfræðingum til að taka ákvarðanir sem stuðla að hagkvæmni í uppbyggingu mannvirkja og tekjustreymi af þeim.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗