Fá að skoða lykilgögn FIFA
FIFA mun leyfa ráðsmönnum sínum að skoða skjöl um fjárfestingaráætlun sína tengda HM, sem horfið hefur verið frá, eftir þrýsting frá UEFA, samkvæmt The Athletic.
Tillagan fól í sér að selja einkafjárfestum minnihlutahlut í viðskipta- og viðburðastarfsemi FIFA, þar á meðal heimsmeistaramótinu. Áætlunin vakti mikla reiði þar sem Infantino hafði unnið að henni án vitundar margra ráðsmanna FIFA.
Ráðsmenn þurfa að skrá sig fyrir 16. nóvember og ferðast til Zürich til að skoða skjölin undir trúnaðarskilmálum en til þessa hafa aðeins hæstu toppar FIFA fengið að sjá skjölin.
UEFA lagði fram 42 spurningar og kröfur og óskaði eftir svörum fyrir 2. nóvember. FIFA hefur enn ekki svarað að fullu.
„Þessum spurningum verður að svara strax. Svörin geta ekki beðið fram að næsta fundi FIFA-ráðsins,“ skrifaði UEFA í bréfi sínu.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗