Björgun á hafi úti náðist á myndband

Björgunarmaður bandarísku strandgæslunnar sígur niður á þilfar Norwegian Bliss undan ströndum Norður-Karólínu á mánudag. Farþegi sem þurfti á bráðri læknisaðstoð að halda var hífður upp í þyrluna á börum. Samsett mynd/Skjáskot/X/USCG East District

Þyrla bandarísku strandgæslunnar sótti farþega sem þurfti á bráðri læknisaðstoð að halda um borð í skemmtiferðaskipinu Norwegian Bliss á dögunum.

Skipið var þá um 50 kílómetra undan ströndum Norður-Karólínu.

Skemmtiferðaskipið Norwegian Bliss. Þyrla bandarísku strandgæslunnar sótti farþega úr skipinu á dögunum þegar það var statt undan ströndum Norður-Karólínu. Ljósmynd/Unsplash/Meg von Haartman

Á myndskeiði sem strandgæslan birti sést björgunarmaður síga úr þyrlunni niður á þilfar skipsins. Farþeginn var hífður um borð í þyrluna á börum og annar farþegi fylgdi á eftir í sérstökum stól.

Flogið var með þann sem þurfti á læknisaðstoð að halda á sjúkrahús í Norfolk í Virginíu. Að sögn strandgæslunnar var líðan farþegans stöðug við komuna þangað.

An aircrew from Air Station Elizabeth City medevaced a passenger from Norwegian Bliss 32 miles off Oregon Inlet, N.C., Nov. 2. The passenger was transferred in stable condition to Sentara Norfolk General Hospital for further care. https://t.co/zjBfzRXBu0

— USCG East District (@uscgEast) November 4, 2026

People

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅