Trump stokkar upp í Hvíta húsinu

Hér má sjá Stephen Miller á blaðamannafundi ásamt Donald Trump Bandaríkjaforseta. AFP/Watson

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt að Stephen Miller verði starfsmannastjóri Hvíta hússins.

Miller, sem hefur verið einn helsti ráðgjafi Trumps á kjörtímabilinu, sér í lagi í innflytjendamálum, leysir Susie Wiles af hólmi.

Hún glímir við krabbamein og er 69 ára. Susie tilkynnti nýlega að hún myndi láta af störfum.

Trump þakkar Wiles kærlega fyrir vel unnin störf í færslu sem hann ritar á eigin miðil. Miller, sem er 41 árs, hefur störf á mánudaginn. 

Stephen Miller er nýr starfsmannastjóri Hvíta hússins.

Stephen Miller er nýr starfsmannastjóri Hvíta hússins. AFP/Jim Watson

„Arkitekt“ harðlínustefnunnar

Tíðindin koma eftir að Repúblíkanar töpuðu gegn „blárri bylgju“ demókrata sem hlutu mun betri kosningu í þingkosningunum í vikunni. 

Demókratar fengu þar meirihluta bæði í öldungadeildinni og fulltrúadeildinni. Repúblikanar höfðu áður meirihluta í báðum deildum.

Steven Miller hefur verið kallaður „arkitekt“ harðlínustefnu forsetans í innflytjendamálum.

Hann hefur verið einn helsti ráðgjafi hans í um áratug og reynst honum hliðhollur. 

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅