Trump stokkar upp í Hvíta húsinu
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt að Stephen Miller verði starfsmannastjóri Hvíta hússins.
Miller, sem hefur verið einn helsti ráðgjafi Trumps á kjörtímabilinu, sér í lagi í innflytjendamálum, leysir Susie Wiles af hólmi.
Hún glímir við krabbamein og er 69 ára. Susie tilkynnti nýlega að hún myndi láta af störfum.
Trump þakkar Wiles kærlega fyrir vel unnin störf í færslu sem hann ritar á eigin miðil. Miller, sem er 41 árs, hefur störf á mánudaginn.
„Arkitekt“ harðlínustefnunnar
Tíðindin koma eftir að Repúblíkanar töpuðu gegn „blárri bylgju“ demókrata sem hlutu mun betri kosningu í þingkosningunum í vikunni.
Demókratar fengu þar meirihluta bæði í öldungadeildinni og fulltrúadeildinni. Repúblikanar höfðu áður meirihluta í báðum deildum.
Steven Miller hefur verið kallaður „arkitekt“ harðlínustefnu forsetans í innflytjendamálum.
Hann hefur verið einn helsti ráðgjafi hans í um áratug og reynst honum hliðhollur.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
