„Getur ekki haldið áfram sem utanríkisráðherra“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur ófæra eða ekki viljuga til að verja hagsmuni Íslands. Samsett mynd/mbl.is/Karítas/Eggert

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur ekki geta haldið áfram sem utanríkisráðherra. 

Þetta segir hann í nýrri færslu á Facebook, þar sem hann deilir frétt Morgunblaðsins í dag.

„Ég tel fullvíst að Carl Baudenbacher hefði verið fáanlegur til að verja Ísland fyrir EFTA-dómstólnum vegna bókunar 35,“ segir Sigmundur í færslunni, en Baudenbacher er fyrrverandi forseti dómstólsins og þekkir EES-samninginn allra manna best að mati Sigmundar.

Utanríkisráðherra hafi þó ekki viljað fá hann í hlutverkið og segir hann það væntanlega stafa af ótta við að þá gæti Ísland unnið. Yrði það tap fyrir ráðherrann.

Ekki fær eða viljug til að verja hagsmuni Íslands

„Það að Þorgerður þyrfti að yfirgefa utanríkisráðuneytið varð strax ljóst af viðbrögðum hennar við niðurstöðu ESB-atkvæðagreiðslunnar en framganga hennar,“ segir Sigmundur og bætir við að síðan þá hafi framganga hennar öll verið til þess fallin að minna á að hún sé ekki lengur fær eða viljug til að verja hagsmuni Íslands út á við.

Telji Þorgerður nauðsynlegt að sitja áfram í ríkisstjórn bendir Sigmundur á að hún geti skipt á embættum við fjármálaráðherra. Gætu þau varið næstu misserum í að reyna að taka til hvort eftir annað.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅