Arnar greinir frá skoðun sinni á miklu hitamáli - Vill horfa stærra

Helgi Fannar Sigurðsson

Föstudaginn 6. nóvember 2026 19:30

Arnar Gunnlaugsson. Mynd: DV/KSJ

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari hefur ekki sterkar skoðanir á því hvort breyta eigi fyrirkomulaginu í Bestu deild karla en hann vill halda í svipaðan leikjafjölda hjá hverju liði.

Arnar gerði frábæra hluti með Víking í Bestu deild karla áður en hann gerðist landsliðsþjálfari. Deildin undanfarin ár hefur verið svo að 12 liðum er skipt í tvennt eftir hefðbundið 22 leikja mót og hvert lið spilar fimm leiki til viðbótar. Mikið hefur verið rætt um að fjölga liðum í 14 og spila hefðbundið mót, 26 leikir á lið. KSÍ er með málið til skoðunnar.

„Ég vil bara halda svipuðum leikjafjölda. Ég er persónulega mjög hrifinn af þessu fyrirkomulagi. Það neikvæða í ár var að við vorum með langan landsleikjaglugga og svo eru bara ekki nægilega mörg lið í Evrópukeppni,“ sagði Arnar um málið við 433.is. 

Hann vill jafnframt horfa í það að reyna að styrkja Evrópusæti Íslands. Eins og er fara Íslandsmeistararnir í undankeppni Meistaradeildarinnar, bikarmeistararnir í undankeppni Evrópudeildarinnar og hin tvö í Sambandsdeildina. Arnar bendir á norska boltann, þar sem efstu tvö liðin fara í undankeppni Meistaradeildarinnar. 

„Ég er mikill stuðningsmaður Bestu deildarinnar. Ég vil að við förum að hugsa eins og Norðmenn, getum við fengið tvö lið í Sambandsdeildina og annað þeirra jafnvel reynt við Evrópudeildina. Ég vil að menn rói í þessa átt þegar búið verður að taka ákvörðun um hvernig deildin verður.“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅