Kourani er enn að hrella Íslendinga

Sprengjuhótanir hafa borist opinberum stofnunum, leikskólum og fyrirtækjum undanfarna daga, en málin eru til rannsóknar lögreglu. RÚV greinir frá því nú í kvöld að hótanirnar hafi verið raktar til Sýrlands, en þær voru allar sendar úr netfangi Mohameds Thors Jóhannessonar, sem Íslendingar þekkja betur undir nafninu Kourani. 

Hótanirnar munu hafa borist með tölvupósti og eru skrifaðar á einfaldri ensku. Allar voru þær keimlíkar og hafa hingað til verið metnar ótrúverðugar. 

Kourani er síbrotamaður sem var dæmdur í átta ára fangelsi árið 2024 fyrir tilraun til manndráps og fjölda annarra brota. Hann var svo sendur til heimalands síns, Sýrlands, í september eftir að hafa afplánað þriðjung refsingar. Eins var honum gert að sæta 30 ára endurkomubanni á Schengen-svæðið. 

Áður en Kourani var dæmdur í fangelsi vakti hann athygli fyrir ítrekaðar hótanir sem hann sendi á opinbera starfsmenn, lögreglu, vararíkissaksóknara, fréttamenn, blaðamenn og fleiri. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅