Björn Leví svarar fyrir sig og hjólar í þingmennina: „Þetta eru gersamlega vanhæfir einstaklingar“

Björn Leví Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, tekur upp hanskann fyrir Sjálfstæðismenn vegna þeirra fjölmörgu fyrirspurna sem Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður flokksins, hefur sent ráðuneytum í tengslum við fjárlagafrumvarpið.

Björn Leví gagnrýnir Sigurjón Þórðarson, þingmann Flokks fólksins og formann fjárlaganefndar, harðlega fyrir ummæli hans um málið.

Tilefnið er umfjöllun Vísis um að Guðlaugur Þór hafi á þremur dögum sent ráðuneytum um 320 fyrirspurnir sem ná yfir samtals um 40 blaðsíður.

Sigurjón gagnrýndi umfang fyrirspurnanna og sagði þær að hluta virðast hafa annan tilgang en að afla skýrra svara. Hann sakaði Sjálfstæðismenn um að reyna að „setja sand í tannhjólin“ og líkti vinnubrögðum þeirra við fyrirspurnir Pírata á árum áður.

„Sjálfstæðismenn eru orðnir hinir nýju Píratar,“ sagði Sigurjón í samtali við Vísi.

„Nokkuð málefnalegar spurningar“

Björn Leví tekur ekki undir gagnrýni Sigurjóns og segir fyrirspurnirnar eiga fullan rétt á sér.

„Af lauslegum yfirlestri þá eru þetta bara nokkuð málefnalegar spurningar fyrir stjórnarandstöðuþingmann,“ skrifar hann á Facebook.

Hann tekur jafnframt fram að hann sé ekki stuðningsmaður Guðlaugs Þórs og myndi ekki ráða hann í starf ef hann hefði um það að segja. Það breyti þó ekki afstöðu hans til fyrirspurnanna.

„En ég sé ekkert sérstakt að þessum spurningum.“

Björn Leví gerir einnig athugasemd við að Sigurjón skuli líkja vinnubrögðum Sjálfstæðismanna við Pírata.

„Nú ætla ég ekki að gefa Sigurjóni það upp á að hafa meint þetta sem niðrandi ummæli um Pírata – frekar að sjálfstæðismenn myndu ekki vilja að þeim væri líkt við Pírata.“

Að lokum snýr hann orðum Sigurjóns við og beinir spjótum sínum að Flokki fólksins.

„Nú heyri ég það væl frá Flokki fólksins sem sagt? Flokkur fólksins orðnir hinir nýju Sjálfstæðismenn – ha? Svo ég launi þennan aumingjaskap frá Sigurjóni bara á hans eigin nótum.“

Sendir Guðlaugi Þór einnig tóninn

Björn Leví lætur ekki þar við sitja heldur gerir einnig athugasemd við ummæli Guðlaugs Þórs, sem sagði í samtali við Vísi að fyrirspurnir Pírata hefðu verið annars eðlis en þær sem hann hefur sjálfur lagt fram. Sumar þeirra hefðu snúist um atriði sem auðvelt hefði verið að finna með einfaldri leit á Google.

Björn Leví hafnar þessu og rifjar upp fyrirspurnir sem sneru að nöfnum sveitarfélaga. Hann segir tilefni þeirra hafa verið að röng sveitarfélaganöfn hefðu verið skráð á fæðingarvottorð.

Að hans sögn hafi því þurft að fá úr því skorið hvort sérstakar reglur giltu um skráningu fæðingarstaðar eða hvort þeir sem önnuðust skráninguna hefðu einfaldlega gert mistök.

„Ég vissi nafn sveitarfélagsins og sá því að skráningin var röng. GÞÞ var í stjórn sem virtist ekki vita nöfn sveitarfélaganna,“ skrifar Björn Leví í athugasemd við eigin færslu.

Hann lýkur athugasemdinni með harðri gagnrýni á þingmenn.

„Gætum við vinsamlegast fengið betri þingmenn takk? Þetta eru gersamlega vanhæfir einstaklingar allavega.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅