Vilja reyna aftur við Gibbs-White en fá samkeppni frá United

Manchester United og Tottenham hafa áhuga á Morgan Gibbs-White, fyrirliða Nottingham Forest.

Samkvæmt Teamtalk fylgjast bæði félögin vel með þessum 26 ára gamla Englendingi en Tottenham reyndi einnig að fá hann sumarið 2025.

Gibbs-White hefur verið einn besti leikmaður Forest undanfarin ár og kom að 25 mörkum í 53 leikjum á síðustu leiktíð. 

Forest hefur hins vegar engan áhuga á að selja fyrirliðann, sérstaklega ekki í janúar. Gibbs-White skrifaði undir nýjan samning á síðasta ári og þyrfti því afar gott tilboð til að fá félagið til að íhuga sölu.

Staðan gæti þó breyst næsta sumar, sérstaklega ef Forest nær ekki að rétta úr kútnum í ensku úrvalsdeildinni eftir erfiða byrjun á leiktíðinni.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅