Fyrrverandi fyrirliðinn bráðkvaddur

Giorgi Nemsadze, fyrrverandi fyrirliði georgíska landsliðsins í fótbolta og miðjumaður Dundee, er látinn 54 ára að aldri eftir hjartaáfall. Ljósmynd/Georgíska knattspyrnusambandið

Giorgi Nemsadze, fyrrverandi fyrirliði georgíska landsliðsins í fótbolta og miðjumaður Dundee, er látinn 54 ára að aldri eftir hjartaáfall, að því er Dinamo Tbilisi tilkynnti.

Nemsadze, sem lék 69 landsleiki, gekk til liðs við Dundee árið 2000. Hann var í þrjú ár hjá skoska félaginu og var tekinn inn í frægðarhöll þess árið 2010.

„Allir hjá Dundee Football Club eru harmi slegnir vegna andláts fyrrverandi leikmanns okkar og meðlims frægðarhallarinnar, Giorgi Nemsadze,“ sagði félagið á vefsíðu sinni.

Meðal annarra félaga hans voru Hamburg, Trabzonspor og Grasshoppers.

Eftir að hann lagði skóna á hilluna varð hann íþróttastjóri Dinamo, áður en hann tók að þjálfa unga georgíska leikmenn og stýrði nokkrum félögum, þar á meðal Dinamo.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅