Heimsmet í rauðum spjöldum í einum leik
Heimsmet var slegið þegar 53 manns fengu rauða spjaldið í knattspyrnuleik undir 20 ára liða Uberlândia og Mamoré í Brasilíu, en fyrra metið var 36.
Brottrekstrarnir náðu til 43 leikmanna, átta starfsmanna þjálfarateyma og tveggja stjórnarmanna.
Upp úr sauð eftir að Mamore komst í 3:1 og leikmaður hæddist að varamannabekk andstæðinganna, sem varð til þess að markmannsþjálfari Uberlândia veittist að honum.
Lögregla var kölluð til en miklar skemmdir urðu á leikvanginum, meðal annars voru 14 hurðir brotnar. Dómarinn flautaði leikinn af eftir um 40 mínútna hlé.
Uberlândia gaf síðan seinni leikinn og lýsti því sem „drengskap“ þar sem Mamore hafði aðeins sjö leikmenn tiltæka.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗