„Ég trúi varla að ég sé þakklát fyrir skilnaðinn“
Brittany Snow á viðburði í október. Leikkonan segist þakklát fyrir skilnaðinn þrátt fyrir að sambandsslitin hafi reynst henni erfið. AFP/Lisa O'Connor
Bandaríska leikkonan Brittany Snow segist í dag þakklát fyrir skilnaðinn við fyrrverandi eiginmann sinn, Tyler Stanaland. Hún viðurkennir þó að það hafi tekið á að hefja nýtt líf eftir sambandsslitin.
Snow, sem er fertug og hvað þekktust fyrir hlutverk sín í Pitch Perfect og The Hunting Wives, ræddi skilnaðinn í hlaðvarpinu Armchair Expert á dögunum. Hún og Stanaland gengu í hjónaband árið 2020 en skildu að skiptum tveimur árum síðar. Skilnaðurinn gekk formlega í gegn árið 2023.
„Ég er svo þakklát fyrir að hafa gengið í gegnum þetta. Manneskjan sem ég er í dag og sambandið sem ég er í núna eru svo ólík því sem áður var. Ég trúi varla að ég sé þakklát fyrir skilnaðinn,“ sagði leikkonan.
Hún rifjaði jafnframt upp erfiðan tíma í kjölfar sambandsslitanna þegar hún var 37 ára og bjó tímabundið í leiguíbúð.
„Ég sat bara og horfði á hundinn minn og hugsaði með mér að ég hefði ekki hugmynd um hvað tæki við. Nú værum við bara tvö og þyrftum að byggja lífið upp á nýtt.“
Áfall að sjá framkomu eiginmannsins
Snow, sem er nú í sambandi með ljósmyndaranum Hunter Moreno, sagðist hafa fundið mikinn styrk í frásögnum annarra kvenna sem höfðu gengið í gegnum sambærilega reynslu.
Áður hefur leikkonan rætt hvernig framkoma Stanalands í Netflix-þáttunum Selling the OC, þar sem hann átti í ástarflækjum með öðrum konum, hafi haft áhrif á hjónabandið. Hún sagðist hafa verið slegin yfir því sem hún sá í þáttunum.
Þrátt fyrir erfið sambandsslit segist Snow ekki sjá eftir hjónabandinu.
„Það var mikil ást á milli okkar. Ég sé ekki eftir neinu sem gerðist því mér þótti vænt um þann tíma sem við áttum saman.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/98/1689824.jpg)