Óvissa hjá Glódísi Perlu
Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði í fótbolta, leikur ekki með Bayern München gegn Werder Bremen í efstu deild Þýskalands í fótbolta í kvöld vegna meiðsla.
Félagið greindi frá því á heimasíðu sinni að Glódís væri að glíma við hnémeiðsli en óvíst er hve alvarleg meiðslin eru og hve lengi hún verður frá.
Hún lék heldur ekki í 1:0-sigri Bayern á Bayer Leverkusen í bikarnum síðastliðinn sunnudag.
Ísland leikur við Portúgal í úrslitaeinvígi umspilsins um sæti á lokamóti HM í byrjun desember.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗