Landsliðsmaðurinn með áhugaverða klásúlu
Haukur Þrastarson er sagður hafa ákvæði í samningi sínum sem gerir honum kleift að yfirgefa Rhein-Neckar Löwen eftir að þjálfaranum Maik Machulla var sagt upp.
Samkvæmt Mannheimer Morgen inniheldur samningur íslenska landsliðsmannsins í handbolta ákvæði sem er sérstaklega bundið því að Machulla haldi áfram sem þjálfari.
Brotthvarf hans gæti því opnað á félagaskipti þrátt fyrir að Haukur sé samningsbundinn til sumarsins 2028.
Haukur hefur skorað 55 mörk í ellefu leikjum í þýsku 1. deildinni á tímabilinu. Rhein-Neckar Löwen er í 13. sæti af 18 liðum með sjö stig eftir ellefu leiki.
Machulla var sagt upp í október eftir slaka byrjun á tímabilinu. Ákvæðið hefur ekki verið staðfest opinberlega.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗