Íslensk kona vill ekki borga fullt gjald vegna blæðinga

Íslensk kona er ósátt við að þurfa að borga fullt gjald í leikfimi vegna blæðinga. Allison Saeng/Unsplash

Kona sem þarf oft að sleppa æfingum heila viku í mánuði vegna mikilla tíðaverkja telur sanngjarnt að greiða minna fyrir líkamsræktarkort hjá World Class. Færsla hennar í Facebook-hópnum Beauty Tips vakti umræðu um hvort taka ætti tillit til blæðinga við verðlagningu korta.

Umræða skapaðist á Beauty Tips um hvort konur ættu að greiða minna fyrir líkamsræktarkort vegna blæðinga. mbl.is/Árni Sæberg

„Mér finnst að konur ættu að borga aðeins minna á mánuði í World Class vegna blæðinga,“ skrifaði hún.

Konan sagðist hafa reynt að mæta á æfingar meðan hún væri á blæðingum en verkirnir væru stundum svo miklir að hún þyrfti ítrekað að fara á salernið til að kasta upp. Hún vildi ekki taka getnaðarvarnapilluna og taldi ósanngjarnt að greiða sama verð og karlar, sem þyrftu ekki að sleppa æfingum vegna tíðaverkja.

Ólík reynsla af hreyfingu

Hugmyndin fékk misjafnar undirtektir. Í einni athugasemd við færsluna var því haldið fram að það væri mismunun ef annað kynið fengi að greiða minna fyrir aðgang að líkamsræktarstöð.

Aðrir ræddu áhrif hreyfingar á tíðaverki. Ein kona sagðist finna fyrir minni verkjum þegar hún hreyfði sig og hvatti höfund færslunnar til að leita til læknis ef verkirnir væru svo slæmir að staðaldri.

Önnur sagði hreyfingu hafa þveröfug áhrif hjá sér.

„Þeir aukast hjá mér þegar ég fer í ræktina og er alltaf máttlaus á túr,“ skrifaði hún.

Hugmynd um lægra mánaðargjald fyrir konur fékk misjafnar undirtektir á Beauty Tips. mbl.is/​Hari

Telur lægra gjald sanngjarnt

Ein kona tók undir hugmyndina og undraðist andstöðu annarra kvenna við hana.

„Mér finnst magnað hvað margar konur eru á móti þessari hugmynd,“ skrifaði hún.

Hún taldi lægra gjald mjög sanngjarnt og benti á að aðgangur að sundlaugum eða heitum pottum fylgdi oft líkamsræktarkortum. Að hennar mati gætu margar konur heldur ekki nýtt sér þá aðstöðu meðan þær væru á blæðingum.

Ein kona benti á að sumar konur nýttu hvorki sundlaugar né heita potta meðan þær væru á blæðingum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fá aukadaga vegna blæðinga

Erlendis eru dæmi um að líkamsræktarstöðvar lengi gildistíma korta kvenna til að taka tillit til blæðinga.

Samkvæmt BoxLife Magazine bjóða sumar líkamsræktarstöðvar fyrir konur í Kína 37 daga mánaðarkort í stað 30 daga korta. Aukavikunni er ætlað að bæta upp æfingadaga sem falla niður vegna tíðaverkja eða annarra óþæginda við blæðingar.

Dæmi um slíkt fyrirkomulag má einnig finna í Rússlandi. Líkamsræktarstöðin Idol Gym í Jakútsk hefur lengt mánaðarkort kvenna úr 30 dögum í 37 án þess að hækka verðið.

Hjá Invictus Girls í Kasakstan geta konur með tiltekin sex mánaða eða lengri kort fengið allt að þriggja daga ókeypis frystingu vegna blæðinga. Gildistími kortsins lengist þá sem nemur frystingunni.

Með þessum hætti geta konur tekið sér hlé frá æfingum vegna blæðinga og nýtt dagana síðar.

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅