Ferðamenn nefna stærstu mistökin sem þeir gerðu á Íslandi – „Ég fór á hestbak án góðs brjóstahaldara“
Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 6. nóvember 2026 19:00
Maður þarf að passa sig áður en maður fer á bak. Mynd/Getty
Ferðalög eru ekki alltaf einföld. Sérstaklega ekki til framandi og fjarlægra landa þar sem aðstæður eru ekki eins og fólk er vant. Fyrir marga ferðamenn er Íslands áfangastaður ævintýra en vitaskuld kemur alltaf eitthvað upp sem hefði verið hægt að gera öðruvísi.
Í umræðum erlendra ferðamanna á Facebook reifa þeir stærstu mistökin sem þeir gerðu í Íslandsferð sinni.
„Hver voru stærstu mistökin sem þú gerðir í Íslandsferðinni? Að gleyma að pakka einhverju sem þú þurftir svo sannarlega á að halda? Að bóka ranga ferð? Að vanmeta veðrið? Að eyða peningum í eitthvað sem var ekki þess virði? Eða kannski gerðirðu eitthvað sem virtist vera frábær hugmynd þá og þegar... þar til það reyndist alls ekki vera það!“ segir upphafsmaður umræðunnar í líflegum þræði. Svörin létu ekki á sér standa.
„Ég keyrði of hratt og fékk dýrustu hraðasekt ævi minnar,“ segir einn og bendir á að á íslenskum þjóðvegum leynist hraðamyndavélar víða. Hann hafi fengið sekt upp á tæplega 50 þúsund krónur. „Ég áttaði mig ekki á því að ég væri að keyra of hratt. Ég var bara að humma og njóta lífsins.“
„Þrátt fyrir viðvaranir fóru dætur okkar með óvarið hárið í Bláa lónið,“ segir ein kona. Hárið á þeim hafi verið eins og þurrt hey eftir á.
Umræður um áhrif Bláa lónsins á hár fólks hafa áður dúkkað upp. Forsvarsmenn lónsins segja að efnin í lóninu, svo sem kísill og steinefni, skemmi ekki hárið heldur þvert á móti hafi góð áhrif á það. Áferðin breytist hins vegar til skamms tíma ef ekki er notuð hárnæring sem boðið er upp á.
„Ég athugaði ekki hvort að gamli jakkinn minn væri vatnsheldur,“ segir einn.
Eins og Íslendingar vita getur verið afar blautt hér á landi, sérstaklega á haustin og vorin. Er Ísland á meðal þeirra Evrópulanda sem hafa mesta ofankomu.
„Ég held að enginn jakki sé nógu vatnsþéttur fyrir Ísland,“ segir ein kona. „Þú verður að vera í gúmmíjakka eða bara gleyma þessu.“
„Ég fór á hestbak án góðs brjóstahaldara,“ segir ein kona.
Íslenski hesturinn er þekktur fyrir sínar fimm gangtegundir eins og ferðamenn fá að kynnast á hestaleigum landsins. Fet, brokk, stökk, tölt og skeið. Töltið er hinn frægi séríslenski gangur en þessi óheppna kona hefur sjálfsagt fengið betur að kynnast brokkinu.
„Ég tók ekki út reiðufé í íslenskum krónum við komuna í Keflavík (til að láta leiðsögumenn hafa þjórfé). Maður þarf ekki reiðufé fyrir neitt annað,“ segir ein kona.
Sá siður að borga þjórfé hefur verið að ryðja sér til rúms á Íslandi, meðal annars á veitingastöðum og í ferðaþjónustu, einkum vegna tilkomu bandarískra ferðamanna.
„Ég gerði of mikil plön. Njótið stundarinnar þegar svo ber undir. Gleymið tímatöflunni,“ segir einn.
Þetta eru algeng mistök sem ferðamenn nefna, ekki aðeins á Íslandi. Það er að vera búnir að gera allt of mikið plön fyrir ferðina til þess að ná að gera sem mest. En á móti kemur nær fólk ekki að njóta þess sem það sér. Á Íslandi þarf einnig að keyra langar vegalengdir á milli staða.
„Ég var ekki nógu lengi,“ segir ein.
Þetta er reyndar sennilega algengasta svarið. Þrátt fyrir ýmis konar erfiðleika, hátt verðlag og vont veður, þá eru flestir ferðamenn ánægðir. Svo ánægðir að þeim langar jafn vel ekki aftur heim.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗