Greint frá dánarorsökinni

Íþróttir | mbl | 6.11.2026 | 18:25

Suðurafríski rúgbíleikmaðurinn Hyron Andrews er látinn, 31 árs að aldri.

Suðurafríski rúgbíleikmaðurinn Hyron Andrews er látinn, 31 árs að aldri. AFP

Suðurafríski ruðningsleikmaðurinn Hyron Andrews lést af völdum ósæðarflysjunar, að því er félag hans, Lions, hefur staðfest í kjölfar krufningar í Frakklandi.

Frönsk yfirvöld lýstu „rofi í ósæðinni (af náttúrulegum orsökum) sem leiddi til verulegrar blóðsöfnunar í gollurshúsinu sem umlykur hjartað,“ sagði félagið í yfirlýsingu fyrir hönd fjölskyldu hans.

Andrews, sem var 31 árs, lést þegar liðið heimsótti La Rochelle í október. Í yfirlýsingunni kom fram að flysjunin hefði að öllum líkindum orðið út frá ósæðargúl.

Leikmaðurinn lætur eftir sig eiginkonu og tvo unga syni. Fjölskylda hans óskaði eftir að fá að vera í friði á meðan undirbúningur hófst við að flytja lík hans heim til Suður-Afríku.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅