Ólseig tugga um bankaskatt
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, er sammála Seðlabankastjóra. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir í færslu á Linkedin gamla tuggu um bankaskatt ólseiga, en rangt sé að þegar bankaskattur hafi verið lækkaður hafi ekkert gerst.
„Sagan er önnur og frekar stutt: Þegar bankaskattur lækkaði í mars/apríl 2020 lækkaði Landsbankinn vexti í kjölfarið þann 7. apríl 2020,“ segir Lilja í færslunni og bendir á að bankaskattur sé kostnaður sem reiknast á fjármögnun banka.
Sitjum með 43 milljarða á engum vöxtum
Hún segir þeim reiknast til í dag að bankaskattur, sérstakur tekjuskattur, vaxtalaus bindiskylda og sérstakur skattur á launagreiðslur í bönkum samsvari kostnaði sem nemur 0,65% af hverju útláni.
„Vaxtalaus bindiskylda þýðir að við sitjum með 43 milljarða á engum vöxtum í Seðlabankanum.“
Með hækkun bankaskatts, sem boðuð er í fjármálaáætlun vegna áranna 2027–2031, segir Lilja töluna hækka úr 0,65% í það sem samsvari 0,81% af hverju útláni.
Sammála Seðlabankastjóra
„Það er rétt sem Seðlabankastjóri segir, það skiptir meginmáli að það sé skýrt hvort skatturinn sé ótímabundinn, tímabundinn og kannski eitthvað gerist í framtíðinni, eða skýrt tímabundinn og falli niður án nokkurrar annarrar aðkomu löggjafans. Það segir sig sjálft í hverjum rekstri að það skiptir máli.“
Í lok færslunnar segir Lilja þau bíða, frekar óspennt, eftir því hver niðurstaðan verður í þetta sinn.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗