Stjórnarráðslóðin fer fyrir dóm

Svona sjá arkitektar fyrir sér að nýbygging forsætisráðuneytis muni líta út. Til vinstri eru skrifstofubyggingar sem standa á lóðunum Hverfisgata 4 og 6. Tölvuteikning/Kurt og pí

Stofnað verður á næstunni til eignardómsmáls fyrir héraðsdómi til að sanna eignarhald á lóðinni Lækjargötu 1 sem var hluti af Arnarhólsjörðinni í Reykjavík.

Á lóðinni er Stjórnarráðshúsið, reist sem fangelsi og tekið í notkun 1771.

Danska ríkið stóð að byggingu hússins sem komst í innlenda eigu þegar Íslendingar fengu stjórnarskrá árið 1874.

Gamla tukthúsið

Byggingin á Arnarhólstúni var tukthús frá því smíði lauk fram til ársins 1813 og eftir það embættisbústaður stiftamtmanns, en sá var fulltrúi Danakonungs á Íslandi og æðstur embættismanna á Íslandi. Með stjórnarskrá tóku við landshöfðingjar á Íslandi og frá upphafi heimastjórnar árið 1904 hafa forsætisráðherrar Íslands haft skrifstofu sína í þessu reisulega húsi við Lækjargötuna.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅