Þrír dauðadæmdir fangar teknir af lífi sama daginn – Einn baðst afsökunar rétt fyrir dauða sinn

Þrír dauðadæmdir fangar voru teknir af lífi í Bandaríkjunum í gær, einn í Flórída, annar í Alabama og sá þriðji í Indiana.

Slíkt er afar sjaldgæft en þetta er í annað sinn á þremur mánuðum sem þrjár aftökur fara fram á einum degi í landinu. Á sama tíma hefur Gawin Newson, ríkisstjóri Kaliforníu, boðað áform um að milda hundruð dauðadóma sem þykir undirstrika þann djúpstæða ágreining sem ríkir um dauðarefsingar í Bandaríkjunum.

Baðst afsökunar á síðustu stundu

Í Flórída var Jesse Guardado, 64 ára, tekinn af lífi með banvænni lyfjagjöf. Hann myrti Jackie Malone, 75 ára konu, árið 2004 sem hafði áður hjálpað honum að útvega sér vinnu og húsnæði.

Guardado stakk konuna til bana á heimili hennar og stal meðal annars skartgripum og peningum til að fjármagna fíkniefnaneyslu sína.

Þegar dregið var frá gluggatjöldunum að aftökuklefanum klukkan 18 að staðartíma lá Guardado þegar bundinn á aftökubekknum með nál í handleggnum.

Hann var spurður hvort hann vildi segja eitthvað að lokum.

„Ég vil enn á ný biðjast afsökunar á þeim sársauka og þjáningum sem ég hef valdið fjölskyldu fórnarlambsins og minni eigin fjölskyldu,“ sagði hann en um var að ræða nítjándu aftökuna í Flórída á árinu.

Tvær aftökur til viðbótar eru fyrirhugaðar áður en árið er á enda og stefnir allt í að met verði sett í Flórída yfir aftökur á einu ári.

Myrti öldruð hjón með málmstöng

Í Alabama var Michael Taylor, 54 ára, tekinn af lífi fyrir hrottaleg morð sem hann framdi árið 1991, þá aðeins 19 ára gamall.

Taylor barði hjónin Ivan Moore, 83 ára, og Lucille Moore, 79 ára, til bana með málmstöng þegar hann fór ránshendi um heimili þeirra. Lögregla handtók hann skömmu síðar þar sem hann ók Cadillac-bifreið hjónanna.

Þegar Taylor var spurður hvort hann vildi segja einhver lokaorð svaraði hann einfaldlega: „Nei, herra.“

Lögmenn Taylor höfðu reynt að fá dauðadómnum breytt í lífstíðarfangelsi og bent á ungan aldur hans þegar morðin voru framin. Kay Ivey, ríkisstjóri Alabama, hafnaði því.

Fjölskylda fórnarlambanna sagðist þakklát fyrir að málinu væri loksins lokið en harmaði að hafa þurft að bíða í 35 ár eftir því að refsingunni yrði fullnægt.

Tók tvö börn af lífi með íkveikju

Þriðja aftakan fór fram í Indiana, þar sem Jeffrey Weisheit, 50 ára, var tekinn af lífi skömmu eftir miðnætti eins og DV greindi frá í gær.

Weisheit hafði verið dæmdur til dauða fyrir að hafa orðið tveimur börnum kærustu sinnar, Alyssu Lynch og bróður hennar Caleb, að bana með því að kveikja í húsi árið 2010.

Hann hafði vonast til þess að Mike Braun, ríkisstjóri Indiana, myndi breyta refsingunni í lífstíðarfangelsi en þeirri beiðni var hafnað. Weisheit kaus að tjá sig ekki áður en hann var tekinn af lífi.

Skaut á yfirvöld í Kaliforníu

Alls hafa 35 aftökur farið fram í Bandaríkjunum það sem af er ári samkvæmt samantekt AP og hefur Flórída staðið fyrir meira en helmingi þeirra.

Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, hefur lagt áherslu á að fjölskyldur fórnarlamba eigi rétt á því að dauðadómum sé fullnægt, jafnvel þótt áratugir séu liðnir frá glæpunum.

Kay Ivey, ríkisstjóri Alabama, tók í sama streng og beindi spjótum sínum að yfirvöldum í Kaliforníu.

„Kalifornía kann að leyfa glæpamönnum sínum að komast undan réttvísinni, en það gerum við ekki í Alabama. Hér framfylgjum við lögunum og munum alltaf gera það,“ sagði hún.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅