Arsenal og City hafa áhuga

Helgi Fannar Sigurðsson

Föstudaginn 6. nóvember 2026 18:30

Elliot Anderson, Tino Livramento og Morgan Rogers. Getty Images

Arsenal og Manchester City hafa áhuga á Tino Livramento, bakverði Newcastle.

Samkvæmt Football Insider hafa bæði félög áður reynt að fá þennan 23 ára gamla Englending en Newcastle hefur ekki viljað selja hann.

Livramento getur spilað bæði í hægri og vinstri bakverði og hefur hann heillað með Newcastle. Hann hefur þó glímt við meiðsli og aðeins spilað 33 mínútur í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Livramento er samningsbundinn Newcastle til ársins 2028 og vill félagið framlengja við hann. Ef ekki næst samkomulag gæti Newcastle hins vegar verið tilbúið að selja hann næsta sumar.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅