Unnið að uppsetningu nýrra ratsjáa

Ný ratsjá komin á undirstoðir sínar á Stórhöfða í Vestmannaeyjum.

Ný ratsjá komin á undirstoðir sínar á Stórhöfða í Vestmannaeyjum. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Landhelgisgæslan vinnur að uppsetningu fjögurra ratsjáa sem munu að sögn efla eftirlit á hafsvæðum nærri landi og auka siglingaöryggi.

„Ratsjárnar nýtast meðal annars við landamæraeftirlit, eftirlit með fjarskiptaköplum og almenna löggæslu á hafinu,“ segir á vef Landhelgisgæslunnar.

Fram kemur að undanfarna mánuði hafi starfsmenn Landhelgisgæslunnar og verktakar á hennar vegum unnið að uppsetningu ratsjánna á Sauðanesi á Vestfjörðum, Stórhöfða í Vestmannaeyjum, Gunnólfsvíkurfjalli við Langanes og Borgarhafnarfjalli í nágrenni Hornafjarðar.

Kaupin á ratsjánum eru styrkt af landamærasjóði Evrópusambandsins.

„Upplýsingar frá ratsjánum berast til stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð og bæta yfirsýn yfir skipaumferð á svæðunum. Drægni þeirra er um 40–60 sjómílur, eða 74–111 kílómetrar, út á haf. Þá er hægt að nýta þær til að meta sjólag. Stöðvarnar eru jafnframt búnar myndavélum og AIS-móttökurum.“

Landhelgisgæslan segir að uppsetningin hafi verið umfangsmikið verkefni.

Flutningur í gangi.

Flutningur í gangi. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

„Á dögunum flutti varðskipið Freyja eina ratsjána frá Hafnarfirði til Vestmannaeyja. Þaðan var hún flutt landleiðina út á Stórhöfða og fest á undirstöður undir umsjón Jóns Gunnars Ingibergssonar varðstjóra.“

Sú ratsjá hefur nú verið tengd og upplýsingar frá henni berast til stjórnstöðvarinnar í Skógarhlíð.

Þá segir að í þessari viku sé verið að tengja ratsjána á Gunnólfsvíkurfjalli og að á næstu dögum verði unnið að uppsetningu stöðvanna á Sauðanesi og Borgarhafnarfjalli.

„Ratsjárnar eru af gerðinni Furuno og hugbúnaðurinn sem notaður er til að stjórna þeim og birta upplýsingar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar er frá Timezero. JEES arkitektar önnuðust hönnun ratsjárhúsanna.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅