Áhrifafólk úr dansheiminum kemur til Íslands

Flóðreka er eitt þeirra verka sem gestirnir frá útlöndum fá að sjá. Ljósmyndir/Björgvin Sigurðarson

Um þrjátíu stjórnendur erlendra hátíða og leikhúsa frá þrettán löndum koma til Reykjavíkur dagana 11.–15. nóvember til að kynna sér íslenskan samtímadans á Iceland Moves.

„Margir þeirra ráða því hvaða verk eru sýnd á þekktum hátíðum og í leikhúsum erlendis. Heimsóknin getur því opnað danslistafólki frá Íslandi leið að nýjum áhorfendum,“ er haft eftir tilkynningu.

Meðal gesta eru fulltrúar Chaillot – Théâtre national de la Danse í París, Festival TransAmériques í Montréal, Julidans í Amsterdam, Fabbrica Europa í Flórens og evrópska dansnetsins Aerowaves. Auk þess að velja verk til sýninga geta gestirnir átt þátt í að hrinda nýjum samstarfsverkefnum af stað.

„Gestirnir sjá átta dansverk í fullri lengd, fimm sýnishorn úr verkum í vinnslu og sjö stuttar verkefnakynningar. Þeir hitta listafólkið, kynnast menningarstofnunum hér á landi og sjá verkin í því umhverfi sem þau spretta úr. Fyrir lifandi listform á borð við dans skiptir sú upplifun sköpum. Upptaka eða kynning á netinu kemur ekki í stað þess að sitja í salnum,“ segir í tilkynningu.

Verkin í fullri lengd eru:

  • Sérstæðan – Rósa Ómarsdóttir
  • Papa – Halla Ólafsdóttir og Sindri Runudde
  • hryggr – Bára Sigfúsdóttir
  • no lemons no melon – Inga Huld Hákonardóttir og Yann Leguay
  • Flóðreka – Aðalheiður Halldórsdóttir og Íslenski dansflokkurinn
  • Straumur – Íslenski dansflokkurinn
  • Konukroppar – Gleym-mér-ei
  • Heyrðu mig – Sveinbjörg Þórhallsdóttir og Diljá Sveinsdóttir

Heyrðu mig vakti mikla athygli á árinu.

Heyrðu mig vakti mikla athygli á árinu. Ljósmynd/Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir

„Iceland Moves er haldið í fyrsta sinn og fer fram samhliða Reykjavík Dance Festival. Að verkefninu standa Sviðslistamiðstöð Íslands, Reykjavík Dance Festival, Íslenski dansflokkurinn og Dansverkstæðið, með stuðningi Íslandsstofu. Markmiðið er að fjölga sýningartækifærum íslenskra danshöfunda og dansara og efla tengsl þeirra við erlendar hátíðir og leikhús.

Iceland Moves varð til þegar ljóst var að norræni dansvettvangurinn Ice Hot yrði ekki haldinn árið 2026. Þar hafa íslenskir danshöfundar getað kynnt verk sín fyrir erlendum sýningarhöldurum og fengið tækifæri til að sýna þau víðar.

Sviðslistamiðstöð Íslands hafði frumkvæði að því að sameina krafta hér heima og bjóða erlendum gestum til landsins. Reykjavík Dance Festival tók vel í hugmyndina og bauðst til að hýsa Iceland Moves sem hluta af hátíðinni. Öll verkin á Iceland Moves voru valin af sérstöku fagráði.

Sviðslistamiðstöð leiðir verkefnið og sér um að tengja saman listafólk og erlenda gesti. Íslenski dansflokkurinn og Dansverkstæðið leggja sitt af mörkum við skipulag og framkvæmd, og Íslandsstofa styður komu gestanna. Þannig nýtast aðstaða, þekking og tengsl sem þegar eru fyrir hendi til að skapa fleiri tækifæri fyrir listafólkið,“ segir í tilkynningu.

Fjárfesting í listsköpun þarf að ná lengra en að frumsýningu

„Það getur tekið marga mánuði að skapa dansverk sem er síðan aðeins sýnt örfá kvöld á Íslandi. Smæð markaðarins hér heima takmarkar möguleika á frekara sýningarhaldi, þótt verkið geti átt erindi við áhorfendur víða um heim.

„Við eigum framsækna danshöfunda og verk sem standast vel samanburð við það sem gerist erlendis. Þegar margra mánaða vinna liggur að baki sýningu skiptir miklu að hún fái fleiri tækifæri en þessi fáu kvöld hér heima. Þess vegna er svo mikilvægt fyrir danslistafólkið okkar að ná til áhorfenda utan landsteinanna,“ segir Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Sviðslistamiðstöðvar Íslands í tilkynningu.

Með fleiri sýningum nýtist betur sú vinna og það fjármagn sem lagt hefur verið í verkin. Sýningar erlendis geta aflað tekna og skapað danshöfundum, dönsurum og samstarfsfólki þeirra frekari atvinnu. Með kynningu og sýningum erlendis má þannig auka ávinninginn af þeim opinbera stuðningi sem þegar hefur verið veittur til listsköpunarinnar.

Dæmi um hversu víða íslensk dansverk geta ferðast er When the Bleeding Stops eftir Lovísu Ósk Gunnarsdóttur. Verkið var frumsýnt á Reykjavík Dance Festival árið 2021 og hefur síðan verið sýnt yfir 50 sinnum í 16 löndum. Það hefur meðal annars verið sýnt á Julidans í Amsterdam og hjá Trafó í Búdapest, en fulltrúar beggja eru meðal gesta Iceland Moves í ár.

Ávinningurinn af Iceland Moves getur náð lengra en til þeirra verka sem gestirnir sjá að þessu sinni. Með því að hitta listafólkið og kynnast starfi menningarstofnana hér á landi geta gestirnir fengið hugmyndir að samstarfi sem verður að veruleika síðar.

„Það væri draumastaðan að sjá þessi verk ferðast um heiminn. En við viljum líka að fólk kynnist og haldi sambandi. Þótt gestur velji ekki sýninguna sem hann sér hér getur hann fengið áhuga á danshöfundinum og viljað vinna með viðkomandi síðar,“ segir Friðrik.

Verkefnið fellur að áherslum Sviðslistamiðstöðvar um að efla sýningarhald og bæta starfsskilyrði listafólks. Sambærilegar áherslur koma fram í drögum að sviðslistastefnu stjórnvalda fyrir árin 2026–2030, þar sem fjallað er um að verk nái til fleiri áhorfenda og að sýningar erlendis skapi tekjur, lengi líf verkanna og efli alþjóðlegt samstarf.“

Dagskrá og nánari upplýsingar: icelandmoves.is og reykjavikdancefestival.com. Miðasala á tix.is.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅