Rosenior segist ætla að uppljóstra um hluti sem gerðust á bak við tjöldin hjá Chelsea - „Ég er ekki brandari!“
Liam Rosenior, fyrrverandi stjóri Chelsea, hefur tjáð sig um tíma sinn hjá félaginu og gagnrýnir hann meðal annars hvernig fjölmiðlar og stuðningsmenn komu fram við hann.
Rosenior tók við Chelsea í janúar en var rekinn í apríl eftir aðeins 107 daga í starfi. Hann stýrir nú Paris FC í Frakklandi.
„Þetta var besta reynsla lífs míns en jafnframt sú erfiðasta. Þetta var frábært þótt þetta hafi aðeins varað í fjóra mánuði,“ segir Rosenior.
„Fólk gerði grín að leiðbeiningunum sem ég skrifaði á blað fyrir Garnacho þegar við vorum manni færri gegn PSG. Fötin mín urðu að efni í brandara og sömuleiðis hvernig ég talaði. Ég er ekki brandari!“
Rosenior segir að umfjöllun fjölmiðla hafi farið úr böndunum þrátt fyrir að Chelsea hafi byrjað vel undir hans stjórn.
„Ég vil ekki fara út í smáatriðin núna en einn daginn mun ég segja frá því sem raunverulega gerðist. Það sem gerðist þarna hafði ekkert með fótbolta að gera.“
Rosenior vann ellefu af 23 leikjum sínum hjá Chelsea en tapaði sjö af síðustu átta leikjunum áður en hann var rekinn.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗