Lögregla á þyrlu teiknaði typpi á flugkortið – „Ég er ekki reiður, ég er vonsvikinn yfir sóuninni“

Kristinn H. Guðnason

Föstudaginn 6. nóvember 2026 17:30

Flugmaðurinn sagðist hafa verið að leita að bíl sem stoppaði ekki fyrir lögreglu. Mynd/NPAS

Flugmaður lögregluþyrlu í Bretlandi hefur verið sakaður um að „teikna“ typpamynd á flugkort. Flugmaðurinn segist hafa verið að hringsóla við leit.

Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá þessu.

Gordon Bird, 53 ára maður frá Hampshire í suðurhluta Englands, vaknaði við það á mánudag að þyrla var að fljúga yfir. Flaug hún hring eftir hring í um það bil 15 mínútur.

Fannst honum þetta undarlegt, opnaði tölvuna sína og skoðaði flugumferðarkort af svæðinu. Þá sá hann að þyrlan hafði flogið beint að svæðinu og þar „teiknað“ typpamynd.

Flugkortið sýndi dónalega teikningu þyrlunnar.

Tilkynnti hann þetta til fjölmiðla og var flugþjónusta lögreglunnar, NPAS, spurð út í atvikið. Að sögn talsmanns NPAS hafnaði þyrluflugmaðurinn því að hafa viljandi verið að teikna typpi á flugumferðarkortið. Hann hefði verið að leita að ökumanni bíls sem hafði ekki stoppað fyrir lögreglu. Þyrlan hafi flogið yfir ákveðna vegi, gatnamót og svæði eftir leiðbeiningum lögreglumanna á jörðu niðri. Það hafi verið tilviljun að reðurmyndin hafi birst á kortinu.

„Sjálft flugið í kringum húsið okkar stóð yfir í 15 til 20 mínútur, teikningin af typpinu... tók um hálftíma, og flugið í heild sinni, samkvæmt vefsíðum á borð við Flightradar, var klukkutíma langt,“ segir Bird sem tók svör NPAS ekki trúanleg. „Ég er ekki reiður, ég er vonsvikinn yfir sóuninni.“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅