Er þetta arftaki Van Dijk á Anfield? - Fáanlegur á góðu verði næsta sumra
Liverpool og Chelsea hafa áhuga á Castello Lukeba, miðverði RB Leipzig.
Samkvæmt blaðamanninum Ekrem Konur er þessi 23 ára gamli Frakki eftirsóttur af þó nokkrum stórliðum og gæti hann endað í enska boltanum.
Lukeba hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína í Þýskalandi. Þá er hann líkamlega sterkur og góður á boltanum. Liverpool sér hann sem mögulegan arftaka Virgil van Dijk.
Lukeba er samningsbundinn Leipzig til ársins 2029 en riftunarákvæði í samningi hans er nú um 70 milljónir punda. Það lækkar hins vegar í um 57 milljónir punda næsta sumar og gæti því orðið hart barist um hann.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗