Orðið á götunni: Örvæntingarfull tilraun skrímsladeildar til að gera ráðherra tortryggilegan vegna Landsvirkjunar

Örvænting stjórnarandstöðunnar og Morgunblaðsins hefur náð nýjum hæðum með þeirri ofuráherslu sem lögð hefur verið á að snúa út úr öllu sem snýr að málefnum Landsvirkjunar og reyna að gera úr forstjóraskiptum þar mál sem fjármálaráðherra er vændur um að hafa ekki upplýst þingið um trúnaðarmál innan úr stjórn fyrirtækisins sem eðli máls samkvæmt ættu að vera trúnaðarmál og þar af leiðandi ekki til að fjalla um opinberlega.

Guðlaugur Þór Þórðarson hefur ítrekað kvatt sér hljóðs í þingsal með upphrópunum og köllum og vænt ráðherra um að upplýsa þingið ekki vegna þessa. Guðlaugur Þór hefur sennilega ekki mikla reynslu af því að eiga sæti í stjórnum fyrirtækja en þar er alls staðar fortakslaus skylda stjórnarmanna og halda trúnaði og fjalla ekki um það sem gerist á stjórnarfundum. Hann ætti að kynna sér slíkar reglur og skyldur áður en hann hrópar og æsir sig í þingsal.

Orðið á götunni er að Daði Már Kristófersson hafi upplýst allt sem heimilt er að upplýsa um það sem snýr að Landsvirkjun. Hann hefur birt skjöl um málið, þar á meðal lögfræðiálit sem staðfestir að fundir stjórnar með ráðuneytinu hafi verið í samræmi við lög og góða stjórnarhætti. Hluti af ólund minnihlutans í þinginu er að þegar núverandi ríkisstjórn tók við völdum fyrir tæpum tveimur árum var farið að skipa í helstu stjórnir í eigu ríkisins fagfólk í staðinn fyrir pólitíska varðhunda sem búa gjarnan yfir takmarkaðri þekkingu á málefnum fyrirtækjanna. Þannig var Álfheiður Ingadóttir, fyrrum ráðherra Vinstri grænna, sett út úr stjórninni og aðrir slíkir pólitískir varðhundar sem fyrir voru.

Fram hefur komið að ráðherra hafi tvisvar fundað með nýrri stjórn Landsvirkjunar um almenna stjórnarhætti og að fulltrúar ráðuneytisins hafi að auki átt fundi með stjórninni um árlegt sjálfsmat stjórnar og með forstjóra og stjórn um nýja arðgreiðslustefnu ríkisins. Ráðuneytið hefur haldið sambærilega fundi með öðrum ríkisfyrirtækjum.

Orðið á götunni er að öll þessi umræða um Landsvirkjun sé í meginatriðum stormur í vatnsglasi sem má rekja til þess að forstjórinn og stjórn hafa ekki náð saman um mikilvæg mál sem leiddi til þess að forstjórinn sagði af sér. Slíkt gerist í fyrirtækjum þegar daglegir stjórnendur og stjórn sem skipuð er af eigendum fyrirtækjanna ná ekki samstöðu um mikilvæg mál. Þá gerist það ávallt að viðkomandi stjórnandi víkur en ekki fulltrúar eigendanna. Hörður Arnarson, sá ágæti, reyndi og vel menntaði maður, er greinilega sár yfir því að svona skyldi fara og því hefur hann fóðrað fjölmiðlaumræðuna með skoðunum sínum langt umfram það sem eðlilegt má telja. Hann hefur gegnt forstjórastörfum í tveimur verðmætustu fyrirtækjum landsins í 27 ár samtals og ætti að vera sáttur við það kominn vel á sjötugsaldurinn. Allt hefur sinn tíma, einnig brottför forstjóra stórra fyrirtækja úr störfum sínum.

Stjórnarandstaðan hefur reynt að blása þetta mál upp og reyna að koma höggi á ríkisstjórnina með því. Það er í raun og veru sorglegt að sjá hve stjórnarandstaðan er veik og ráðþrota. Hún hefur ekkert fram að færa. Hún virðist ekki hafa nein raunveruleg mál til að gera ágreining út af. Ef ekki er tal um Guðmund Inga Kristjánsson eða Jón Gnarr þá er reynt að gera veður út af ágreiningi forstjóra og stjórnar ríkisfyrirtækis sem getur vitanlega alltaf komið upp og þá er eðlilegt að forstjórinn víki en ekki stjórnin, fulltrúi eigenda. Þá hefur stjórnarandstaðan sent inn 300 fyrirspurnir til ráðuneyta til að reyna að trufla. Guðlaugur Þór hefur staðið fyrir því og bregður sér þar með í líki Björns Leví, fyrrum þingmanns Píratanna. Þeim var refsað með því að eyða flokknum og þeim öllum út af Alþingi. Guðlaugur Þór ætti að minnast þess.

Morgunblaðið hefur ekki heldur ekki látið sitt eftir liggja enda er skrímsladeildin vistuð þar. Leiðari blaðsins í dag er trúlega einn sá galnasti sem lengi hefur verið birtur. Þar koma fram þungar ásakanir um lögbrot og óboðleg vinnubrögð af hálfu ráðherra. Skrif blaðsins eru ekkert annað en atvinnurógur og fyrir neðan allar hellur. Ef blaðið væri almennt tekið alvarlega hlytu skrif þess að kalla á lögsókn. En til þess kemur væntanlega ekki því blaðið er ekki trúverðugt lengur. Sá tími er löngu liðinn.

Orðið á götunni er að ekki hafi komið á óvart að Birni Bjarnasyni hafi verið boðið að koma í spjallþátt blaðsins til að úthúða Viðreisn sem hann telur að líði senn undir lok. Þar er á ferðinni tíu ára gömul óskhyggja þessa aldna skrímsladeildarmanns Sjálfstæðisflokksins. Vel fer á því að hann hafi sér til fulltingis sjálfa Álfheiði Ingadóttur, gamlan kommaráðherra, sem hefur lengi átt sæti í stjórn Landsvirkjunar sem pólitískur varðhundur sem núverandi ríkisstjórn hefur sem betur fer afnumið og innleitt fagmennsku í staðinn.

Athygli vekur að þeir sem hafa sig mest frammi í þessum áróðri núna eru tveir fyrrum ráðherrar Sjálfstæðisflokksins sem gengu árum og áratugum saman með þann draum að verða formenn Sjálfstæðisflokksins. Til þess kom ekki og mun aldrei verða. Guðlaugur Þór bauð sig fram á móti sitjandi formanni og tapaði stórt. Hann beið svo færis á að bjóða sig fram að nýju þegar Bjarni Benediktsson hætti í fyrra en gugnaði. Þá fór hann að dreifa sögum um að hann ætlaði að bjóða sig fram til embættis borgarstjóra en rann einnig á rassinn með það þegar eftirspurn skorti.

Björn Bjarnason gekk með drauma sína um að verða formaður Sjálfstæðisflokksins, eða varaformaður, forsætisráðherra eða utanríkisráðherra og borgarstjóri sem hann reyndi við en tapaði þeim slag stórt. Björn varð ekkert af þessu.

Orðið á götunni að ólund þessara tveggja fyrrverandi ráðherra flokksins verði helst skýrð með sárum vonbrigðum sem setja mark sitt á alla framkomu þeirra öllum stundum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅