Arsenal og United á eftir sama leikmanni
Ensku knattspyrnufélögin Arsenal og Manchester United eru á eftir Marcus Tavernier, sóknarmanni Bournemouth.
Teamtalk segir frá en Tavernier, sem er 27 ára gamall, hefur slegið í gegn með Bournemouth á tímabilinu.
Hann er kominn með fimm mörk í níu leikjum í deildinni en Bournemouth hefur unnið sjö leiki í röð í öllum keppnum.
Tavernier gekk í raðir Bournemouth sumarið 2022 frá Middlesbrough og hefur síðan skorað 26 mörk í 140 leikjum.
Hann spilar helst sem vinstri kantmaður en getur einnig spilað fleiri stöður.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗