Arsenal og United á eftir sama leikmanni

Marcus Tavernier er í fantaformi.

Marcus Tavernier er í fantaformi. AFP/Darren Staples

Ensku knattspyrnufélögin Arsenal og Manchester United eru á eftir Marcus Tavernier, sóknarmanni Bournemouth.

Teamtalk segir frá en Tavernier, sem er 27 ára gamall, hefur slegið í gegn með Bournemouth á tímabilinu.

Hann er kominn með fimm mörk í níu leikjum í deildinni en Bournemouth hefur unnið sjö leiki í röð í öllum keppnum.

Tavernier gekk í raðir Bournemouth sumarið 2022 frá Middlesbrough og hefur síðan skorað 26 mörk í 140 leikjum.

Hann spilar helst sem vinstri kantmaður en getur einnig spilað fleiri stöður.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅