Hefur ekki neinn áhuga á því að taka við United

Hörður Snævar Jónsson

Föstudaginn 6. nóvember 2026 17:00

Didier Deschamps, þjálfari Frakka. Mynd DV/KSJ

Didier Deschamps, fyrrverandi landsliðsþjálfari Frakklands, hefur samkvæmt enskum fjölmiðlum hafnað því að taka við Manchester United.

Samkvæmt Mirror hafði United samband við Frakkann vegna mögulegrar ráðningar hans í stað Michael Carrick, sem er undir mikilli pressu á Old Trafford.

Deschamps er hins vegar sagður hafa gert forráðamönnum United ljóst að hann hafi ekki áhuga á starfinu.

Hinn 58 ára gamli Frakki lét af störfum hjá franska landsliðinu eftir heimsmeistaramótið í sumar, eftir 14 ár við stjórnvölinn.

Hann stýrði Frakklandi meðal annars til heimsmeistaratitils árið 2018.

United hefur átt erfitt uppdráttar á tímabilinu og framtíð Carrick er í mikilli óvissu.

Félagið þarf því að horfa til annarra kosta ef ákveðið verður að skipta um knattspyrnustjóra.

Eddie Howe og Julian Nagelsmann hafa einnig verið orðaðir við starfið.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅