Skoraði gegn Liverpool sem vill kaupa hann
Enska knattspyrnufélagið Liverpool hefur áhuga á að fá bakvörðinn Arche Brown í sínar raðir.
Teamtalk segir frá en Brown, sem er 24 ára gamall, er leikmaður Fenerbahce í Tyrklandi.
Hann spilar vinstra megin og skoraði í 3:2-sigri Fenerbahce á Liverpool fyrr í vikunni.
Brown kom upp í gegnum akademíu Derby en fór síðan til Lausanne í Sviss. Þaðan skipti hann yfir til Gent í Belgíu áður en hann varð leikmaður Fenerbahce í fyrrasumar.
Brown er með samning til sumarsins 2028 í Istanbúl.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗