Unnið að uppsetningu nýrra ratsjáa
Landhelgisgæslan vinnur að uppsetningu fjögurra ratsjáa sem munu að sögn efla eftirlit á hafsvæðum nærri landi og auka siglingaöryggi.
„Ratsjárnar nýtast meðal annars við landamæraeftirlit, eftirlit með fjarskiptaköplum og almenna löggæslu á hafinu,“ segir á vef Landhelgisgæslunnar.
Fram kemur að undanfarna mánuði hafi starfsmenn Landhelgisgæslunnar og verktakar á hennar vegum unnið að uppsetningu ratsjánna á Sauðanesi á Vestfjörðum, Stórhöfða í Vestmannaeyjum, Gunnólfsvíkurfjalli við Langanes og Borgarhafnarfjalli í nágrenni Hornafjarðar.
Kaupin á ratsjánum eru styrkt af landamærasjóði Evrópusambandsins.
„Upplýsingar frá ratsjánum berast til stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð og bæta yfirsýn yfir skipaumferð á svæðunum. Drægni þeirra er um 40–60 sjómílur, eða 74–111 kílómetrar, út á haf. Þá er hægt að nýta þær til að meta sjólag. Stöðvarnar eru jafnframt búnar myndavélum og AIS-móttökurum.“
Landhelgisgæslan segir að uppsetningin hafi verið umfangsmikið verkefni.
„Á dögunum flutti varðskipið Freyja eina ratsjána frá Hafnarfirði til Vestmannaeyja. Þaðan var hún flutt landleiðina út á Stórhöfða og fest á undirstöður undir umsjón Jóns Gunnars Ingibergssonar varðstjóra.“
Sú ratsjá hefur nú verið tengd og upplýsingar frá henni berast til stjórnstöðvarinnar í Skógarhlíð.
Þá segir að í þessari viku sé verið að tengja ratsjána á Gunnólfsvíkurfjalli og að á næstu dögum verði unnið að uppsetningu stöðvanna á Sauðanesi og Borgarhafnarfjalli.
„Ratsjárnar eru af gerðinni Furuno og hugbúnaðurinn sem notaður er til að stjórna þeim og birta upplýsingar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar er frá Timezero. JEES arkitektar önnuðust hönnun ratsjárhúsanna.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
