Kourani standi að baki sprengjuhótunum

Lögregla hefur ekki tjáði sig um hvaðan hótanirnar berast.

Lögregla hefur ekki tjáði sig um hvaðan hótanirnar berast. mbl.is/Árni Sæberg

Grunur hefur beinst að Mohamad Thor Jóhannessyni, áður Mohamad Kourani, í tengslum við sprengjuhótanir sem borist hafa íslenskum stofnunum og fyrirtækjum að undanförnu.

Þetta kemur fram á RÚV.

Lögregla telur sig þekkja uppruna hótunar sem barst Keflavíkurflugvelli í gær en hefur ekki viljað nafngreina þann sem talinn er standa að baki henni.

Hlaut áður dóma fyrir sprengjuhótanir

Kourani hefur áður verið sakfelldur fyrir sprengjuhótanir hér á landi.

Hann var árið 2023 dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir fjölda brota, þar á meðal tvær sprengjuhótanir, líkamsárásir og brot gegn valdstjórninni.

Árið 2024 var hann jafnframt dæmdur í fjórtán mánaða fangelsi fyrir meðal annars sprengjuhótun og tilraun til sprengjuhótunar, auk annarra brota.

Kourani var síðar dæmdur í átta ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps og fleiri brot. Landsréttur staðfesti þann dóm í febrúar 2025.

Vísað úr landi í september

Kourani var veitt reynslulausn í september síðastliðnum eftir að hafa afplánað þriðjung átta ára fangelsisdómsins.

Honum var í kjölfarið fylgt til Sýrlands og úrskurðaður í 30 ára endurkomubann á Schengen-svæðið.

Sprengjuhótanir hafa að undanförnu borist meðal annars Keflavíkurflugvelli, Hörpu og ráðuneytum. Lögregla hefur metið hótanirnar ótrúverðugar.

Ómar sagði við RÚV að ekkert benti til þess að hótunin sem barst Keflavíkurflugvelli tengdist sprengjuhótunum sem beinst hafa að fjölmörgum farþegaflugvélum í Evrópu undanfarna daga.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅