Morðið á barnungu fegurðardrottningunni: 30 árum seinna segir bróðirinn eina vísbendingu geta leyst málið
Næstum 30 árum eftir að JonBenét Ramsey fannst myrt á grimmilegan hátt í húsi fjölskyldu sinnar í Boulder í Colorado, hefur bróðir hennar, Burke, rofið áratuga opinbera þögn til að beina rannsakendum að einu sönnunargögnunum sem hann telur að geymi lykilinn að því að afhjúpa morðingjann.
Morðið á JonBenét vakti mikla athygli á sínum tíma, en hún hafði þrátt fyrir ungan aldur orðið þekkt um Bandaríkin og víðar fyrir þáttöku sína í fjölmörgum fegurðarsamkeppnum barna, svokölluðum Pageant. Vann hún fjölda titla eins og America's Royale Miss, Little Miss Charlevoix, Little Miss Colorado, Colorado State All-Star Kids Cover Girl, og National Tiny Miss Beauty.
Sex ára gamla JonBenét fannst látin í kjallaranum á heimili sínu á annan í jólum árið 1996, sjö klukkustundum eftir að lýst var eftir henni og móðir hennar, Patsy, tilkynnti að hún hefði fundið undarlegan þriggja blaðsíðna lausnargjaldseðil þar sem krafist var 118.000 dollara.
JonBenét hafði hlotið 20 sm langt höfuðkúpubrot og var bundinn og kyrkt með nylonsnúru og brotnu pensilskafti.
JonBenét Ramsey.
Burke, sem var aðeins níu ára gamall þegar systir hans var myrt, hefur eytt meirihluta síðustu þriggja áratuga undir mikilli opinberri gagnrýni og fölskum kenningum á netinu sem benda á hann og foreldra hans sem sökudólgana.
Burke, sem nú er 39 ára, tjáði sig í viðtali við Daily Mail til að verjast áratuga vangaveltum og sagði að lögreglan hefði látið mikilvægustu vísbendinguna liggja á hakanum.
Að sögn Burke verða rannsóknarlögreglumenn að hætta að meðhöndla málið með því að einblína aðeins á fjölskylduna sem sökudólga og beina allri tiltækri nútíma réttarlæknisfræðilegri tækni að óþekktu karlkyns DNA sem fannst undir nöglum JonBenét og á nærbuxum hennar.
„Við þurfum að finna þessa samsvörun. Þetta eru bestu sönnunargögnin sem við höfum,“ sagði Burke. „Það var undir nöglunum hennar og það passaði ekki við neitt okkar. Þetta er líklega sá sem framdi verknaðinn og þetta er besti möguleikinn á að við leysum málið. Og ég vil að þetta verði leyst.“
Burke hvatti lögregluna í Boulder til að senda erfðafræðilegu sönnunargögnin til einkarekinna glæpastofa sem sérhæfa sig í erfðafræðilegri ættfræði. „Ég veit ekki mikið um vísindalegu smáatriðin og það er erfitt að læra smáatriðin í málinu því það er tilfinningalega erfitt,“ bætti hann við. „En þau þurfa að senda þessi sýni aftur til mismunandi rannsóknarstofa og halda áfram að prófa þau. Finna samsvörunina. Það mun hjálpa mikið til við að koma réttlætinu á framfæri. Það eru liðin 30 ár og þetta er orðið gott.“
„DNA-ið segir að við gerðum þetta ekki“
Fyrrverandi saksóknari í Boulder, Mary Lacy, sýknaði Burke, John og Patsy Ramsey formlega árið 2008 eftir að ítarleg „snerti-DNA“ greining benti til óþekkts karlmanns (nefndur „Óþekktur karlmaður 1“).
Þrátt fyrir úrskurðinn hafa nethópar sem ræða áhuga sinn á raunverulegum sakamálum og sófasérfræðingar haldið áfram að beina grun sínum að fjölskyldunni. Segir Burke það mjög pirrandi þegar líkamleg sönnunargögn benda til utanaðkomandi geranda.
„DNA-ið segir að við gerðum þetta ekki. Ég veit að enginn í fjölskyldu minni gerði þetta. Ég gerði þetta ekki,“ sagði Burke ákveðinn.
Þegar 30 ár eru liðin frá andláti JonBenéts vonast Burke til þess að almenningur líti fram hjá fjölmiðlasirkusinum á tíunda áratugnum og muni eftir litlu stúlkunni á bak við fyrirsagnirnar.
„Fegurðarsamkeppnir voru aðeins lítill hluti af lífi JonBenéts,“ sagði hann og vonaðist til að endurnýjuð athygli á málinu muni loksins hvetja yfirvöld til að prófa DNA-ið þar til samsvörun finnst.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗