Frábært að spila í Höllinni
„Við mættum klárir, með alla þá virðingu og fókus sem þurfti. Það er náttúrulega frábært að spila í Höllinni heima,“ sagði Janus Daði Smárason, landsliðsmaður í handbolta, í samtali við mbl.is um stórsigurinn á Úkraínu í undankeppni EM 2028 á miðvikudaginn var.
„Mér finnst skemmtilegra að spila meira krefjandi leiki. En það eru fá tækifæri sem maður fær til að spila í Höllinni heima svo við reynum að nýta hvert þeirra,“ sagði Janus.
Ísland vann 48:26 og náði stóru forskoti snemma leiks. Var eftirleikurinn þá auðveldur.
„Ég held að enginn hafi labbað inn í leikinn og ætlast til að vinna þetta svona stórt. Við byrjuðum svo sterkt og af svo miklum krafti að það dró aðeins kraftinn úr þeim.
Ég held að þeir séu kannski aðeins öflugri en þetta og eigi eftir að sýna það í hinum leikjunum,“ sagði Janus.
Næst á dagskrá er leikur við Eistland í Tallinn í sömu undankeppni á sunnudaginn kemur.
„Ég held að þeir séu aðeins betri. Við höfum farið þarna nokkrum sinnum í gegnum tíðina. En að sama skapi eigum við að vinna þann leik líka ef við gerum okkar vel og mætum vel undirbúnir,“ sagði Janus.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗