Yfirmaður herstjórnar NATO í heimsókn á Íslandi

Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, og Nick Perry hershöfðingi, yfirmaður sameiginlegrar herstjórnar Atlantshafsbandalagsins í Norfolk. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Nick Perry hershöfðingi, nýr yfirmaður sameiginlegrar herstjórnar Atlantshafsbandalagsins í Norfolk, kom í sína fyrstu opinberu heimsókn til Íslands í dag. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.

Í heimsókninni voru Perry kynntar aðstæður á Íslandi og framlög Íslands til varnarmála, þar á meðal aðstöðu og innviði á öryggissvæðinu í Keflavík.

Fyrsti breski herforinginn

Perry er fyrsti breski herforinginn til að gegna stöðunni og tók hann við stjórninni af bandaríska flotaforingjanum Douglas G. Perry þann 24. september 2026.

Herstjórnin í Norfolk er fjölþjóðleg aðgerðastjórn Atlantshafsbandalagsins sem heyrir undir æðsta herstjórnanda bandalagsins í Evrópu. Ber hún ábyrgð á vörnum og varnarviðbúnaði á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum, þar á meðal Íslandi.

Hún gegnir jafnframt lykilhlutverki í að tryggja öryggi mikilvægra samgönguleiða milli Norður-Ameríku og Evrópu.

Framlag Íslands aldrei verið mikilvægara

„Heimsókn Perry er gott tækifæri til að ræða sameiginlega hagsmuni okkar og tryggja að þekking á aðstæðum á Íslandi og mikilvægi landsins sé hluti af sameiginlegri varnaráætlanagerð bandalagsins,“ er í tilkynningunni haft eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra.

Þá er jafnframt haft eftir Perry að framlag Íslands til viðbúnaðar, aðgerða og samstarfs innan bandalagsins hafi aldrei verið mikilvægara.

„Vegna landfræðilegrar legu sinnar gegnir Ísland mikilvægu hlutverki í vörnum Norður-Atlantshafsins. Ég hlakka til að efla enn frekar samstarf okkar við Ísland um sameiginlegt öryggi og varnir mikilvægra svæða á Norður-Atlantshafi.“ 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅