Tap RÚV rúmar 400 milljónir

RÚV.

Tap Ríkisútvarpsins nam 408 milljónum króna fyrstu sex mánuði ársins að teknu tilliti til afskrifta og fjármagnsliða. Þetta kemur fram í fundargerð stjórnar RÚV frá 30. september sem birt var á vef stofnunarinnar í vikunni.

Hagnaður fyrir fjármagnsliði nam 103 milljónum en á sama tímabili í fyrra nam hann 295 milljónum króna. Fjármálastjóri sagði að fyrirséð hefði verið að afkoman yrði lakari nú en í fyrra, einkum vegna dreifingar gjalda og tekna innan ársins. Þar vó HM í knattspyrnu þyngst en kostnaður við efniskaup var að verulegu leyti gjaldfærður á fyrri hluta ársins.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅