Fyrsta konan í sögu hússins tekur við
Breski fatahönnuðurinn Martine Rose hefur verið ráðin listrænn stjórnandi spænska tískuhússins Balenciaga. Hún verður fyrsta konan til að gegna starfinu í 109 ára sögu þess. Balenciaga var stofnað árið 1919 af Cristóbal Balenciaga í San Sebastian á Spáni. Höfuðstöðvar merkisins eru í París.
Rose er þekkt fyrir óhefðbundna hönnun og meðal aðdáenda hennar eru stórstjörnurnar Rihanna, A$AP Rocky og Timothée Chalamet.
Rose tekur við af Pierpaolo Piccioli, sem lætur af störfum eftir aðeins þrjár fatalínur og eitt ár hjá húsinu. Hún hefur störf 16. nóvember og verður með aðsetur í París, að því er fram kemur í tilkynningu Kering, móðurfélags Balenciaga.
Tengsl hennar við tískuhúsið eru þó ekki ný af nálinni. Á árunum 2015 til 2018 starfaði hún sem ráðgjafi við herralínur Balenciaga undir stjórn Demna Gvasalia, fyrrum listræns stjórnanda Balenciaga, og átti þátt í að móta stílinn sem einkenndi tímabil hans, þar sem víðar flíkur og ýkt hlutföll voru áberandi.
Sækir innblástur í tónlist og götumenningu
Rose stofnaði fatamerkið Martine Rose árið 2007 og hefur síðan skapað sér sterka stöðu í tískuheiminum. Hönnun hennar sækir meðal annars innblástur í breskan fótbolta, reif- og reggímenningu. Hún leikur sér með snið og hlutföll og blandar hversdagslegum íþróttafatnaði við fínni snið og smáatriði.
Sá stíll hefur fallið í kramið hjá stórstjörnum. Rapparinn Kendrick Lamar fékk hana til að hanna búninga fyrir Big Steppers-tónleikaferð sína árið 2022 og lýsti því í kjölfarið á Instagram að það hefði lengi verið draumur hans að vinna með henni.
Rose hefur einnig verið í samstarfi við íþróttarisann Nike og hannaði hina vinsælu Shox-skó. Hæfileikinn til að skapa eftirsóttar flíkur og fylgihluti gæti reynst dýrmætur hjá Balenciaga, sem vill styrkja tengsl sín við unga kaupendur.
Martine Rose hannaði jakka Kendrick Lamar sem hann klæddist í hálfleik Ofurskálarinnar í fyrra. Gregory Shamus/AFP
Tekur við eftir stormasamt tímabil
Ráðningin kemur á umbrotatímum í rekstri eigin fatamerkis Rose. Hún seldi fyrirtækinu Tomorrow Ltd. 60 prósenta hlut árið 2023 en síðar kom upp ágreiningur um reksturinn.
Í mars tilkynnti Rose að haust- og vetrarlína hennar fyrir 2026 færi ekki í framleiðslu. Tomorrow sendi frá sér yfirlýsingu á móti og línan var engu að síður framleidd. Síðar sama mánuð var merkið selt ítalska fyrirtækinu The Level Group.
Nú bíða hennar umfangsmikil verkefni hjá Balenciaga. Þótt hún sé fyrst og fremst þekkt fyrir herrafatnað hefur hún aukið áherslu á kvenfatnað undanfarin ár og frá 2023 kynnt flíkur fyrir bæði kynin í sömu línum. Þá hafa konur lengi sótt í herralínur hennar.
Vill heiðra arfleifð Balenciaga
Í nýja starfinu mun Rose bera ábyrgð á skapandi stefnu alls tískuhússins. Þar mun meðal annars reyna á sýn hennar á kvenfatnað, hátísku og fylgihluti, auk herralínanna sem hafa skapað henni nafn.
„Það eru sannkölluð forréttindi að vera ráðin listrænn stjórnandi Balenciaga, tískuhúss sem býr að einstakri arfleifð og óttalausum sköpunaranda,“ segir Rose í tilkynningu vegna ráðningarinnar.
Hún segist staðráðin í að heiðra þá arfleifð og hlakkar til að skrifa næsta kafla í sögu hússins.
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
