Stjörnugrís sendir frá sér yfirlýsingu
Stjörnugrís sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfar myndbirtingar úr svínabúi fyrirtæksins. Samsett mynd
„Stjörnugrís hafnar þeirri mynd sem dregin er upp af starfseminni með birtingu myndefnis án fullnægjandi samhengis.“
Þetta segir í yfirlýsingu Stjörnugríss í kjölfar myndbirtingar Einars Loga Péturssonar úr svínabúi fyrirtækisins á Brimnesi á Kjalarnesi þar sem má meðal annars sjá svín með legusár og dauða grísi.
„Einar Logi braust tvívegis inn á gyltubú félagsins, fyrst 11. maí síðastliðinn og aftur 2. september. Félagið lítur háttsemi hans mjög alvarlegum augum. Að mati þess olli fyrra innbrotið dýrunum mikilli hræðslu, alvarlegum skaða og dauða. Þrátt fyrir að greint hefði verið frá þessum afleiðingum braust hann aftur inn á búið,“ segir í tilkynningunni sem barst mbl.is rétt í þessu.
Dýrin þurftu að jafna sig eftir áfallið
Hafi félagið talið nauðsynlegt að gera grein fyrir alvarlegum afleiðingum innbrota Einars Loga og því samhengi sem vanti í framsetningu myndefnisins.
„Samkvæmt upplýsingum félagsins varð mikil hræðsla og röskun meðal dýranna við fyrra innbrotið. Grísir tróðust undir og ýmist drápust eða slösuðust, í sumum tilvikum alvarlega.“
Hafi í kjölfarið orðið fósturlát og grísir fæðst andvana eða veikburða. Þurftu dýrin því aukna ummönnun og tíma til að jafna sig eftir áfallið.
Þá veki atburðarásin jafnframt grun hjá félaginu um að fyrra innbrotið hafi ekki skilað því myndefni sem Einar Logi sóttist eftir. Hafi hann því brotist aftur inn í búið í von um að geta dregið upp verri mynd af aðstæðunum.
Um dýraníð að ræða að mati Stjörnugríss
„Stjörnugrís telur háttsemi Einars Loga hafa valdið dýrunum alvarlegum og í sumum tilvikum óbætanlegum skaða. Að mati félagsins er um dýraníð að ræða. Endurtekið innbrot, eftir að greint hafði verið frá skaðlegum afleiðingum hins fyrra, eykur enn á alvarleika málsins.“
Yfirlýstur vilji til að vernda dýr réttlæti ekki að þau séu sett í hættu, en sóttvarnir og takmarkanir á aðgangi að búum séu mikilvægur þáttur í vernd, heilsu og velferð dýranna. Hafi Einar Logi brotið gegn þeim ráðstöfunum með innbrotunum.
Samrýmist ekki markmiði um dýravelferð
Að mati Stjörnugríss samrýmast því aðgerðir hans ekki yfirlýstu markmiði um dýravelferð.
„Stjörnugrís hafnar þeirri mynd sem dregin er upp af starfseminni með birtingu myndefnis án fullnægjandi samhengis. Málið verður kært til lögreglu og gögn félagsins lögð fyrir viðeigandi stjórnvöld. Félagið leggur áherslu á að háttsemi Einars Loga og afleiðingar hennar verði rannsakaðar til hlítar.“
Stjörnugrís fagnar rannsókn Matvælastofnunar
Þá fagni Stjörnugrís jafnframt rannsókn Matvælastofnunar og málefnalegri umræðu um aðbúnað og velferð dýra. Eigi velferð dýranna að vera í fyrirrúmi.
„Þess má geta að eftirlit með dýrunum er mikið og stöðugt. Þjónustudýralæknir skoðar búið á tveggja vikna fresti og búfjáreftirlit Matvælastofnunar kom í eftirlit á búið þann 15. október síðastliðinn. Það eftirlit var án alvarlegra
Yfirlýsingin í heild sinni:
Í kjölfar birtingar Einars Loga Péturssonar á myndskeiðum úr búi Stjörnugríss hf. telur félagið nauðsynlegt að gera grein fyrir alvarlegum afleiðingum innbrota hans og því samhengi sem vantar í framsetningu myndefnisins.
Einar Logi braust tvívegis inn á gyltubú félagsins, fyrst 11. maí síðastliðinn og aftur 2. september. Félagið lítur háttsemi hans mjög alvarlegum augum. Að mati þess olli fyrra innbrotið dýrunum mikilli hræðslu, alvarlegum skaða og dauða. Þrátt fyrir að greint hefði verið frá þessum afleiðingum braust hann aftur inn á búið.
Myndskeiðin sýna meðal annars dauða og veikburða grísi, afleiðingar fósturláta og dýr með áverka. Slíkt myndefni vekur skiljanlega óhug. Stjörnugrís telur það hins vegar fyrst og fremst sýna afleiðingar fyrra innbrots Einars Loga. Að setja það fram sem lýsingu á venjubundnum aðbúnaði og umönnun dýranna gefur því mjög villandi mynd af starfseminni.
Samkvæmt upplýsingum félagsins varð mikil hræðsla og röskun meðal dýranna við fyrra innbrotið. Grísir tróðust undir og ýmist drápust eða slösuðust, í sumum tilvikum alvarlega. Í kjölfarið urðu fósturlát og grísir fæddust andvana eða veikburða. Dýrin þurftu aukna umönnun og tíma til að jafna sig eftir áfallið.
Atburðarásin vekur jafnframt grun hjá félaginu um að fyrra innbrotið hafi ekki skilað því myndefni sem Einar Logi sóttist eftir og að hann hafi því brotist aftur inn í von um að geta dregið upp verri mynd af aðstæðum.
Stjörnugrís telur háttsemi Einars Loga hafa valdið dýrunum alvarlegum og í sumum tilvikum óbætanlegum skaða. Að mati félagsins er um dýraníð að ræða. Endurtekið innbrot, eftir að greint hafði verið frá skaðlegum afleiðingum hins fyrra, eykur enn á alvarleika málsins.
Yfirlýstur vilji til að vernda dýr réttlætir ekki að þau séu sett í hættu. Sóttvarnir og takmarkanir á aðgangi að búum eru mikilvægur þáttur í vernd, heilsu og velferð dýranna. Með innbrotunum braut Einar Logi gegn þessum ráðstöfunum. Að mati félagsins samræmast aðgerðir hans ekki yfirlýstu markmiði um dýravelferð.
Stjörnugrís hafnar þeirri mynd sem dregin er upp af starfseminni með birtingu myndefnis án fullnægjandi samhengis. Málið verður kært til lögreglu og gögn félagsins lögð fyrir viðeigandi stjórnvöld. Félagið leggur áherslu á að háttsemi Einars Loga og afleiðingar hennar verði rannsakaðar til hlítar.
Stjörnugrís fagnar jafnframt rannsókn Matvælastofnunar, málefnalegri umræðu um aðbúnað og velferð dýra. Velferð dýranna á að sjálfsögðu að vera í fyrirrúmi. Þess má geta að eftirlit með dýrunum er mikið og stöðugt. Þjónustudýralæknir skoðar búið á tveggja vikna fresti og búfjáreftirlit Matvælastofnunar kom í eftirlit á búið þann 15 október síðastliðinn. Það eftirlit var án alvarlegra athugasemda.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/42/15/1421511.jpg)