Fyrsta liðið síðan Liverpool vann KR
Bournemouth hefur skrifað nafn sitt í sögubækurnar með því að verða fyrsta enska knattspyrnufélagið í rúm 60 ár til að vinna fyrstu fjóra leiki sína í Evrópukeppni.
Bournemouth vann Sparta Prag, 3:1, á útivelli í Evrópudeildinni í gærkvöldi og hefur þar með fullt hús stiga eftir fyrstu fjórar umferðirnar. Liðið situr í öðru sæti deildarkeppninnar með tólf stig.
Síðast tókst ensku félagi að vinna fyrstu fjóra leiki sína í Evrópukeppni tímabilið 1964-1965 þegar Liverpool afrekaði það sama.
Liverpool vann þá KR í tveimur leikjum og síðan belgíska liðið Anderlecht í tveimur leikjum til viðbótar.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗