Faðir Meghan Markle var handtekinn í Flórída í dag grunaður um vörslu barnaníðsefnis
Thomas Markle eldri, faðir hertogaynjunnar Meghan Markle, hefur verið handtekinn af bandarísku alríkislögreglunni FBI. Frá þessu greinir The New York Post (NYP).
Handtakan átti sér stað í Flórída þar sem Thomas er búsettur á meðan hann nær sér eftir aðgerð, en fótur hans var fjarlægður í desember á síðasta ári vegna blóðtappa.
NYP hefur það eftir heimildum að rúmlega tugur lögreglumanna hafi komið á heimili Thomas í ómerktri bifreið. Einnig kom sjúkrabíll á vettvang til að flytja Thomas, en hann er í hjólastól.
Thomas var handtekinn áður en hann var leiddur í sjúkrabílinn og honum ekið á brott. Mun handtakan tengjast ásökunum um vörslur á barnaníðsefni.
Málið hefur vakið mikla athygli eftir að sonur Thomas og nafni steig fram í fjölmiðlum og sagðist hafa fundið mikið magn af barnaníðsefni á raftækjum í eigu föður síns. Raftækin voru geymd í kassa á Filippseyjum þar sem sonurinn er búsettur, en þar var Thomas eldri líka búsettur áður en hann veiktist.
Hafa fjölmiðlar eins greint frá því að meira barnaníðsefni hafi fundist í Mexíkó í geymslu sem Thomas hafði þar á leigu, en það voru verið blaðamenn frá DailyMail sem fóru inn í geymsluna og fundu efnið. Þetta gátu þeir þar sem Thomas hafði ekki staðið í skilum með leigu, en blaðamenn segjast hafa fundið bækur um barnagirnd og tímarit sem sýndu misnotkun barna.
Thomas hefur neitað sök í málinu. Mun það eins vera til skoðunar hvort að sonurinn, Thomas yngri, sé viðriðinn málið.
Sjá einnig: Rannsókn beinist einnig að bróður Markle í barnaklámsmáli föður þeirra
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗