Newcastle horfir til Sádí Arabíu í leit að styrkingu

Newcastle United hefur sett stefnuna á að fá enska framherjann Ivan Toney til félagsins þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.

Toney, sem er þrítugur, leikur nú með Al-Ahli í Sádi-Arabíu en gæti verið á leið aftur í ensku úrvalsdeildina.

Framherjinn gerði garðinn frægan með Brentford áður en hann hélt til Sádi-Arabíu. Newcastle er í eigu aðila frá Sádí Arabíu sem hafa sterk tengsl við deildina þar í landi.

Newcastle er sagt fylgjast grannt með stöðu hans og skoða möguleikann á að styrkja sóknarlínu sína um áramótin.

Toney hefur mikla reynslu af ensku úrvalsdeildinni og gæti því verið spennandi kostur fyrir Newcastle.

Ekki liggur fyrir hvort félagið hyggist leggja fram formlegt tilboð né hvaða upphæð Al-Ahli myndi vilja fá fyrir leikmanninn.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅