Davíðstíminn: Davíð og frjálshyggjumennirnir kúventu afstöðu sinni til dreifðs eignarhalds á bönkunum

Davíð Oddsson og frjálshyggjumennirnir í kringum hann vildu upphaflega passa upp á að eignarhald bankanna eftir einkavæðingu yrði dreift og enginn fengi að kaupa meira en örfá prósent í þeim. Svo breyttist þetta og allt í einu var farið að tala um kjölfestufjárfesta og selja helmingshlut. Feðgarnir Reynir Traustason og Jón Trausti Reynisson hafa skrifað mikla bók um Davíðstímann þar sem þeir varpa ljósi á ólíkar hliðar Davíðs. Þeir eru gestir Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Þetta er mikið verk. Þetta eru næstum 500 blaðsíður og mér skilst að þið hafið bara hafið verkið eftir að Davíð féll frá í mars á þessu ári. Þetta er vel að verki staðið. Ég er búinn að glugga í þessa bók og hún er hin áhugaverðasta svo ekki verði meira sagt. Þið nálgist þetta verkefni dálítið skemmtilega. Það er erfitt að fjalla um Davíð Oddsson án þess að skoðanir manna, annaðhvort jákvæðar eða neikvæðar, skíni í gegn. En þið gerið þetta eins og, ja, þetta er svona sannkölluð blaðamannabók vegna þess að skoðun ykkar hún er ekki þarna. Þið talið bara við samferðamenn Davíðs og fjallið um þetta og látið viðmælendur tala en eruð ekki að fella dóma. Hvernig skiptið þið verkum með ykkur?

Reynir: „Ja, upphaflega þegar þessi hugmynd kom upp að skrifa þessa bók þá fannst mér svona nauðsynlegt að fá einhverja kjölfestu í það mál þannig að ég var ekki einn að grautast í þessu og við náttúrlega þekkjumst.“

Já, þið þekkist.

Reynir: „Og það er nú svo skrýtið sem það er að ég er svona öllu villtari heldur en hann. Það ætti nú kannski að vera á hinn veginn en mér fannst alla vega að það væri nauðsynlegt að til að bókin yrði svona vel jarðtengd og fengi svona þetta rólega yfirbragð að fá Jón Trausta með mér og hann féllst á það. Og þá varð það eiginlega úr að raunverulega er hann ritstjóri bókarinnar. Hann er sá sem að segir mér fyrir verkum og þannig skiptum við með okkur verkum. Ég tók viðtöl og var svona út og suður en meginþungi verksins hvíldi á þessum kappa.

Jón Trausti: Í rauninni og svo er hann náttúrlega útgefandi þannig að við erum svona öllum megin við borðið. Og valið náttúrlega í upphafi er hvernig bók á þetta að vera, hvernig bók getum við gert, getum við klárað og unnið vel og hvað hefur þegar verið gefið út og það hafa náttúrlega verið gefnar út margar fínar bækur um afmarkaða þætti sem fara inn á þennan skilgreinda tíma, bæði efnahagshrunið en líka forsætisráðherratíð Davíðs. Björn Jón Bragason skrifaði til dæmis bók um hann, Í liði forsætisráðherra eða ekki, hét hún ef ég man rétt.

Og það hafa safnast saman svo miklar og margar heimildir og náttúrlega þegar Davíð fellur frá þá stíga fram fjölmargir einstaklingar með sögur af honum sem varpa ljósi á karakterinn þannig að hérna það er í rauninni innlegg í heildarsöguna. En þetta hafði ekki verið gert með þessum hætti að taka fyrir tímann og þá velurðu nokkra þræði. Við veljum leiðtogahæfnina. Það er einn þráður í þessari bók, hvernig mótast hann sem leiðtogi bara frá barnæsku og hvernig mótar karakterinn pólitíska arfleifð hans.

Svo er annar þráður í þessu sem er samfélagslegur eins og flestir þræðir bókarinnar. Það er Evrópumálin. Það þræðir sig í gegn og maður sér nú svona ýmis umskipti verða hjá aðilum og þetta varð einhvern veginn meira relevant núna í haust líka eða í sumar. Fiskveiðistjórnarmálin, einkavæðingarmálin, allt eru þetta svona burðarþræðir í bókinni sem er í rauninni ekki hægt að fjalla um með því að skrifa ævisögu Davíðs.

Þú þarft að skrifa sögu sem snertir á samfélaginu í heild og þess vegna er alveg heilmikið fjallað um svona ákveðnar goðsagnir íslenskra stjórnmála eins og Ólaf Ragnar Grímsson og Jón Baldvin Hannibalsson, Jóhönnu Sigurðardóttur, Ingibjörgu Sólrúnu og fleiri. Mér fannst allavegana svona verðmætasta nálgunin fyrir lesandann á þessu stigi mála vera svona lýsandi frásögn, saga sem, þú velur auðvitað alltaf efnið, þú velur alltaf þræðina. Það er ekki til neitt svona fullkomið hlutleysi í því.

Þannig að fólk geti bara gert sér sínar eigin skoðanir. Og kontrastarnir liggja líka í því að þú finnur að við það að skoða heimildir og ræða við menn þá finnurðu að það eru kontrastar sem liggja í til dæmis að viðkomandi er með eina skoðun hérna og svo nokkrum árum seinna er komin alveg sko kúvending í afstöðunni. Og þetta kennir manni svolítið margt um bara hvernig stjórnmál virka og hvernig íslenskt samfélag hefur þróast og þetta er ekkert endilega til hvar sem er þar sem maður getur séð þetta eða rakið sig eftir þessu á einum stað.

Það poppa upp svona fréttir hér og þar að þessi hafi nú sagt þetta en síðan gerði hann alveg hitt. Dæmi um það er einkavæðing bankanna, afstaða Davíðs Oddssonar til hennar og frjálshyggjumannanna allra sem voru þarna með honum. Það stóð alltaf til sem grundvallarprinsipp að það ætti ekki að færa einum aðila meira en X prósent. Mig minnir að það hafi verið 3 til 5 eða 8 prósent af bankanum.

Svo allt í einu er það komið upp hátt í helmingshlut sem þeir vilja selja og báða bankana í einu. Það er mjög áhugaverður þráður að fylgjast með.“

Þegar hugtakið kjölfestufjárfestir varð til.

Jón Trausti: „Það varð til, já, og við þræðum okkur eftir því hvernig viðmiðin breyttust á leiðinni.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅