„Mjög sambærilegar hótanir“
Eyþór Víðisson, öryggissérfræðingur Reykjavíkurborgar, segir að hótanirnar hafi verið metnar ótrúverðugar og því ekki talin þörf á sérstökum öryggisráðstöfunum. Samsett mynd: mbl.is/Anton Brink/Colourbox
Sprengjuhótanir sem borist hafa stofnunum og fyrirtækjum að undanförnu eru mjög svipað orðaðar og mögulegt er að þær hafi verið sendar sjálfvirkt. Þetta segir Eyþór Víðisson, öryggissérfræðingur Reykjavíkurborgar, í samtali við mbl.is.
Eyþór segir lögreglu hafa upplýst borgina um að sambærilegar hótanir hefðu borist víðar. Orðalag þeirra sé mjög staðlað og lítið um eiginlegar upplýsingar í skilaboðunum.
Engin röskun á starfsemi
Eins og mbl.is greindi frá fyrr í dag bárust sprengjuhótanir meðal annars til leikskóla á vegum Reykjavíkurborgar. Hótanirnar voru metnar ótrúverðugar af lögreglu.
Eyþór segist hafa vitneskju um einn leikskóla sem fékk sprengjuhótun, en ekki vita til þess að fleiri leikskólar hafi fengið sambærileg skilaboð.
Hann segir að stjórnandi leikskólans hafi strax haft samband við lögreglu og fylgt fyrirmælum hennar. Ekki hafi verið talin þörf á sérstökum öryggisráðstöfunum og starfsemin hafi ekki raskast.
Upplýsingum um hótunina hafi verið komið áfram innan Reykjavíkurborgar á örfáum mínútum. Í kjölfarið hafi leiðbeiningum lögreglu verið komið á framfæri við stjórnendur starfsstöðva Reykjavíkurborgar í forvarnarskyni.
Tilgangurinn hafi verið að tryggja að stjórnendur vissu hvernig bregðast ætti við ef sambærilegar hótanir bærust öðrum starfsstöðvum borgarinnar.
Ekki verið að leita að sprengjum
Aðspurður um leiðbeiningar ríkislögreglustjóra, þar sem fram kemur að leit í húsnæði sé oft best framkvæmd af þeim sem þar starfa, segir Eyþór að ekki sé ætlast til þess að starfsfólk leiti sérstaklega að sprengjum.
Fremur sé átt við að starfsfólk þekki umhverfi sitt og geti því komið auga á ókunna hluti sem eigi ekki heima á viðkomandi starfsstað, svo sem töskur, poka eða pakka.
Slíka hluti eigi ekki að snerta eða færa heldur gera lögreglu viðvart og fylgja fyrirmælum hennar.
Eyþór leggur áherslu á öryggi starfsfólks og segir engan beðinn um að gera eitthvað sem viðkomandi treystir sér ekki til.
Hann segir mikilvægt að starfsfólk þekki verklagið og viti að fyrstu viðbrögð við sprengjuhótun eigi að vera að hafa samband við lögreglu, sem meti stöðuna og ákveði næstu skref.
Í frétt mbl.is frá því fyrr í dag má sjá leiðbeiningar ríkislögreglustjóra og sérstakan gátlista um viðbrögð við sprengjuhótunum.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗