Z-kynslóðin afhjúpar óvæntar ástæður þess að horfa á sjónvarpsefni með textann á
Hin svokallaða Z-kynslóð, einstaklingar sem fæddir eru á árunum 1997 til 2ö12, eyðir miklum tíma skrollandi í símanum sínum á samfélagsmiðlum. Það má því velta því fyrir sér af hverju sú kynslóð horfir á sjónvarp með textum þegar hún horfir niður á símana sína helminginn af tímanum?
Könnun YouGov leiddi í ljós að 53% breskra einstaklinga á aldrinum 18 til 24 ára nota texta þegar þeir horfa á uppáhalds sjónvarpsstöðvar sínar eða kvikmyndir, meira en nokkur annar aldurshópur.
Það kom á óvart að þeir sem voru á aldrinum 55 til 64 ára voru síst líklegir til að nota texta eða aðeins 20%.
En hvers vegna nota fleiri áhorfendur Z-kynslóðarinnar texta en eldri hópar?
Þeir 35.753 sem tóku þátt í könnuninni voru síðar spurðir hvers vegna þeir notuðu texta. Sumir kenndu „muldri“ fólks á skjánum um, en aðrir sögðu að það væri vegna mismunandi hreims og að persónurnar „töluðu of hratt“, að sögn höfunda rannsóknarinnar.
Vegna hækkandi framfærslukostnaðar hafa margir einstaklingar Z-kynslóðarinnar ekki efni á eigin húsnæði og fjöldi þeirra deilir húsnæði með sambýlingum. Þetta getur leitt til hávaðasams búsetuumhverfis, sem er ein af ástæðunum sem fjöldi þátttakenda nefndi.
Önnur stór breyting er gríðarlegt úrval sem áhorfendur hafa í boði í dag. Áður fyrr höfðu sófakartöflur aðeins fáar rásir og sjónvarpsþætti til að velja úr. Nú til dags hafa áhorfendur hundruð og þúsundir rása, streymiforrita og kvikmynda til að velja úr. Þess vegna er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að halda áhorfendum við efnið, sem getur leitt til flóknari söguþráða.
Einn sem tók þátt í könnuninni sagði: „Án texta finnst mér eins og ég missi af mikilvægum upplýsingum og misskilji söguþráðinn og framvinduna, ég vil frekar skilja myndina til fulls án þess að missa af neinum smáatriðum.“
„Mér finnst líka þess virði að nefna að í sumum sjónvarpsþáttum er mjög mikilvægt að maður nái hverju orði. Ef maður heyrir eitthvað rangt getur það valdið glufu í söguþræði, svo það er öruggara að hafa texta á til að tryggja að maður skilji virkilega hvað er að gerast,“ sagði annar.
Aðrir sögðust halda hljóðstyrknum niðri til að trufla ekki nágranna, en aðrir sögðust þurfa aukalega aðstoð vegna ADHD, einhverfu eða heyrnarerfiðleika.
Og fyrir aðra er þetta einfaldlega bara venja.
Auðvitað sögðust margir vilja fylgjast með þætti á meðan þeir gerðu eitthvað annað, eins og að horfa á farsímana sína.
Hversu hátt hlutfall af hverjum aldurshópi notar texta?
- 18-24 : 53 prósent
- 25-34: 46 prósent
- 35-44: 35 prósent
- 45-54: 24 prósent
- 55-64: 20 prósent
- 65-74: 22 prósent
- 75+: 31 prósent
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗